Sumarhúsalán - Lán - Einstaklingar - Arion banki

Arion banki býður lán til kaupa eða framkvæmda á sumarhúsinu

  • Lánað er til allt að 15 ára
  • Lánshlutfall getur verið allt að 50% af markaðsvirði sumarhússins
  • Lánin eru tryggð með veði í sumarhúsinu
  • Húsið þarf að vera fullbúið við lánveitingu
  • Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum sem fara eftir veðsetningarhlutfalli


Sækja um Sumarhúsalán Spurt og svarað

 

 

Umsóknarferli

Meðfylgjandi umsókn um sumarhúsalán þarf að skila inn auk eftirfarandi gagna til bankans:

  • Afriti af kauptilboði eða verðmati frá löggiltum fasteignasala
  • Afriti af lóðaleigusamningi (óþarfi ef eignalóð)
  • Veðbókarvottorði
  • Útskrift úr fasteignamati (fasteigna- og brunabótamat)
  • Staðfesting á að sumarhús sé tryggt gegn tjóni (öðru en brunatjóni)

Fasteignaþjónusta Arion banka er í Hraunbæ 117 og er opin kl. 9-16.