Nánari upplýsingar vegna útlána SPRON - Upplýsingar vegna útlána SPRON - Til viðskiptavina SPRON og nb.is - Starfsemi - Um bankann - Arion banki

Arion banki og skilanefnd SPRON hafa gert með sér þjónustusamning vegna útlána fyrrum viðskiptavina SPRON. Það skal áréttað að útlánin eru í eigu skilanefndar SPRON en Arion banki sér um að þjónusta þau.

Samningurinn felur í sér að Arion banki kemur til með að þjónusta öll útlán til einstaklinga og fyrirtækja s.s. húsnæðislán, skuldabréf, erlend lán, víxla, rekstrarlán o.fl. sem tilheyrðu SPRON. Þá felst í þjónustunni öll almenn útlánavinnsla s.s. samskipti við skuldara, breytingar á lánaskjölum, breytingar á greiðslufyrirkomulagi, framlenging lána og úrvinnsla lána sem komin eru í vanskil. 

Viðskiptavinir geta sent fyrirspurn eða haft samaband við þjónustuver bankans í síma 444-7000 eða farið í næsta útibú Arion banka. Einnig er hægt að panta viðtal í útibúi með því að fylla út form hér á vefnum.

 

Senda fyrirspurnPanta viðtal