Framkvæmdalán - Lán - Einstaklingar - Arion banki
Arion banki tekur þátt í hvatningarátakinu „Allir vinna“ og býður hagstæð framkvæmdalán
Arion banki lætur ekki sitt eftir liggja og tekur fagnandi þátt í hvatningarátakinu „Allir vinna“. Átakið miðar að því að hleypa krafti í atvinnulífið á Íslandi og býður bankinn því hagstæð framkvæmdalán til góðra verka.
Einstaklingum með góða greiðslugetu er nú boðið upp á hagstæð lán til framkvæmda og endurbóta á eigin íbúðarhúsnæði eða sumarhúsi.
Við bjóðum:
- Engin lántökugjöld.
- 4,75% óverðtryggða vexti (3% lægri vextir en lægstu óverðtryggðu kjörvextir bankans skv. vaxtatöflu).
- Allt að 2 milljónir til allt að 5 ára. Metið eftir viðskiptasögu lántakanda og útlánareglum bankans.
- Ekkert uppgreiðslugjald - heimilt að greiða upp hvenær sem er.
- Lántaki þarf að standast greiðslumat.
Aðrar upplýsingar:
- Eingöngu lánað til einstaklinga vegna framkvæmda við eigið íbúðarhúsnæði og frístundahús þegar unnið er að viðhaldi eða endurbótum á húsnæðinu á byggingarstað.
- Eingöngu lánað fyrir útlögðum kostnaði vegna framkvæmda skv. greiðslukvittuðum reikningum.
- Sé framkvæmdum ekki lokið þarf kostnaðaráætlun og lýsing á framkvæmdum, sem ráðist verður í, að fylgja með umsókninni.
- Lánið er afgreitt gegn framvísun greiddra reikninga fyrir vöru- og þjónustukaupum sem tengjast framkvæmdunum.
- Framkvæmdum þarf að vera lokið fyrir áramótin, þ.e. reikningurinn þarf að vera kominn fyrir áramótin en síðasti umsóknardagurinn er 1.12.2010.
- Hámarksveðhlutfall allt að 70% af markaðsvirði eignar.
- Lántaki þarf að standast greiðslumat.
- Mánaðarlegar greiðslur.
Kostnaðaráætlun (102 KB)
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2010.
„Allir vinna“ er hvatningarátak um atvinnuskapandi framkvæmdir á vegum stjórnvalda í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins. Markmiðið er að vekja athygli á endurgreiðslu virðisaukaskatts og skattafrádrætti vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði og sumarhús þegar unnið er að viðhaldi eða endurbótum. Með átakinu eru landsmenn hvattir til þátttöku í stórum sem smáum verkum. Nánari upplýsingar um átakið má finna á http://www.allirvinna.is/