Fréttir - Fjölmiðlar - Um bankann - Arion banki
21.11.2009
Til baka
Áfram
Afkoma Nýja Kaupþings banka (nú Arion banka) frá 22. október til ársloka 2008
Hagnaður eftir skatta 4,8 milljarða króna
- Hagnaður eftir skatta nam 4,8 ma.kr. á tímabilinu 22. október til 31. desember 2008.
- Hreinar vaxtatekjur námu 4,2 ma.kr. og hreinar þóknunartekjur 1,3 ma.kr.
- Rekstrartekjur voru alls 31,4 ma.kr. á tímabilinu, þar af 31,1 ma.kr. gengishagnaður sem skýrist af 6,8% veikingu íslensku krónunnar gagnvart gengisvísitölu Seðlabanka Íslands og neikvæðum gjaldeyrisjöfnuði bankans. Á móti gengishagnaði kemur aukin virðisrýrnun útlána í erlendri mynt vegna skertrar greiðslugetu þeirra lánþega sem hafa eingöngu tekjur í íslenskum krónum.
- Virðisrýrnun útlána og krafna á tímabilinu nam 19,7 ma.kr.
- Gjaldfærður kostnaður bankans vegna skuldbindingar við Tryggingarsjóð innstæðueiganda og fjárfesta nam 2,97 ma.kr.
- Tekjuskattur nam 766 m. kr., þar af koma til greiðslu tæpar 600 m. kr. á árinu 2010.
- Eiginfjárhlutfall bankans (CAD hlutfall) nemur 9,5% í árslok 2008 en að teknu tilliti til innbyggðra gengisvarna er hlutfallið 10,8% Lögbundið lágmark er 8%.
- Arðsemi eigin fjár var 39,4% miðað við heilt ár.
- Hagnaður á hlut var 0,38 krónur.
- Kostnaðarhlutfall bankans var 19,5%. Að teknu tilliti til gengishagnaðar og óreglulegra liða í kostnaði er kostnaðarhlutfallið 49,5%.
- Heildareignir voru 641,2 ma.kr. í lok ársins.
- Eigið fé nam 76,9 ma.kr. í lok árs 2008.
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka:
„Við fögnum því að endurskoðuðu uppgjöri Nýja Kaupþings banka hf. (nú Arion banka) fyrir árið 2008 er lokið. Uppgjörið staðfestir að bankinn hefur fest sig í sessi sem öflugt fjármálafyrirtæki sem er vel í stakk búið til að þjónusta íslensk heimili og fyrirtæki. Þá var styrkum stoðum skotið undir hinn nýja banka með samningnum milli íslenska ríkisins og skilanefndar Kaupþings í september sl. þar sem fjármögnun og lausafjárstaða hans var tryggð.
Financial Statements 31.12.2008 (755 KB)
Til baka
| Dagsetning | Fyrirsögn |
|---|---|
| 30.08.2010 | Jóhannes Jónsson hættur hjá HögumJóhannes Jónsson hættur hjá Högum |
| 27.08.2010 | Arion banki býður leikhúskort fyrir lægra verðArion banki býður leikhúskort fyrir lægra verð |
| 18.08.2010 | Arion banki styrkir HSÍArion banki styrkir HSÍ |
| 06.08.2010 | Breytingar á innra skipulagi bankansBreytingar á innra skipulagi bankans |
| 05.08.2010 | Arion banki og Ferðafélag barnannaArion banki og Ferðafélag barnanna |
| 26.07.2010 | Arion banki styður unglingastarf GSÍArion banki styður unglingastarf GSÍ |
| 22.07.2010 | Viðurkenning frá JP Morgan Chase BankViðurkenning frá JP Morgan Chase Bank |
| 09.07.2010 | Viðskiptavinir fá afslátt hjá yfir 300 fyrirtækjumViðskiptavinir fá afslátt hjá yfir 300 fyrirtækjum |
| 07.07.2010 | Lántakendum erlendra íbúðalána býðst að greiða 5.000 af hverri milljónLántakendum erlendra íbúðalána býðst að greiða 5.000 af hverri milljón |
| 30.06.2010 | Erlend íbúðalán - lausnir í boði til 1. septemberErlend íbúðalán - lausnir í boði til 1. september |
| 25.06.2010 | Arion banki er einn af bakhjörlum Íþróttasambands fatlaðraArion banki er einn af bakhjörlum Íþróttasambands fatlaðra |
| 24.06.2010 | Athugasemd frá Arion bankaAthugasemd frá Arion banka |
| 16.06.2010 | Tilkynning frá Arion banka vegna dóms HæstaréttarTilkynning frá Arion banka vegna dóms Hæstaréttar |
| 04.06.2010 | Upplýsingar um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja og starf umboðsmannsUpplýsingar um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja og starf umboðsmanns |
| 01.06.2010 | Formleg bankastjóraskipti í Arion banka 1. júníFormleg bankastjóraskipti í Arion banka 1. júní |
Áfram