Eignastýring - Arion banki


Til baka á yfirlit sjóða 
Fjárfestingarstefna
Markmið Eignavals B er að ná góðri ávöxtun og áhættudreifingu með fjárfestingum í blönduðu safni verðbréfa. Markmið Eignavals B er enn fremur að ávaxta fjármuni hlutdeildarskírteinishafa á virkan hátt með því að nýta sér fjárfestingar í verðbréfum og sjóðum sem rekstraraðili telur best á hverjum tíma.

Fjárfestingarviðmið Eignavals B er 90% skuldabréf, skuldabréfasjóðir og innlán og 10% hlutabréf og hlutabréfasjóðir. Áhersla er á að fjárfesta í öðrum sjóðum til að auka áhættudreifingu.

Sjóðurinn er ætlaður einstaklingum og stofnanafjárfestum, s.s. lífeyrissjóðum og fyrirtækjum, sem velja sér fjárfestingarkosti sem fela í sér sjóði um sameiginlega fjárfestingu með dreifðu eignasafni verðbréfa og annarra fjármálagerninga í rekstri og umsjón fagaðila skv. lögum og eftirliti sem um slíkan sjóð gildir á hverjum tíma.

Gengismunur: 0,5% Þóknun: 0,7% á ári1
Viðskiptatími: Vetur: 9:00 - 14:00 / Sumar: 9:00 - 14:00 Afgreiðsla viðskipta: T+3
Fjárfestingarviðmið:  Gjaldmiðill sjóðs:  Íslensk króna
Útboðslýsing:  Útboðslýsing Annað: 
Útdráttur:  Útdráttur Einblöðungur: Ágúst 2010

Ávöxtun (ISK)2
Dagsetning 1 m  3 m  6 m  12 m  3 ár  5 ár  Frá áramótum  
08. 09 2010 5,75% 7,11% 11,37% -- -- -- 13,55%

Ávöxtun ár hvert (ISK)
2004 2005 2006 2007 2008 2009
-- -- -- -- -- --

Verðþróun (ISK)
Myndin sýnir þróun gengis (verðþróun) sjóðsins frá valdri dagsetningu.
Hægt er að velja samanburð fyrir sjóðinn og sýnir myndin þá þróun gengis sjóðsins og valins samanburðar.
Samanburður: 3   Tímabil:
 
0
Skoða verðþróunargögn í Excel.
   
Nafnávöxtun (ISK)
Myndin sýnir ávöxtun sjóðsins frá ársbyrjun til ársloka tiltekin ár.
Ávöxtun núverandi árs er m.v. nýjasta útgefna gengi sjóðsins á árinu.

  1. Eignastýringar- og vörsluþóknun: Tekið er tillit til þóknunar við daglegan útreikning gengis. Beinn útlagður kostnaður vegna reksturs sjóðsins er ekki innifalinn í þóknun rekstrarfélagsins og sama á við um kostnað vegna Fjármálaeftirlits. Föst þóknun reiknuð af meðalstærð sjóðsins, sem rennur til rekstrarfélagsins, Arion og annarra aðila, er því 1,55%.
  2. Ávöxtunartölur miðast við nafnávöxtun sjóða. Ávöxtun umfram 12 mánuði er umreiknuð í ávöxtun á ársgrundvelli.
  3. Athugið að hægt er að velja samanburð milli sjóða sem eru ólíkir að uppbyggingu og áhættustigi. Heppilegast er að bera verðþróun sjóðsins saman við fjárfestingarviðmið hans eða sambærilega sjóði.