Reglur vegna hagsmunaárekstra - Reglur og samþykktir - Um bankann - Arion banki

Almennt um regluvörslu

Fjármálafyrirtæki er skylt að koma á regluvörslu og skal sjá til þess að hún sé skilvirk og óháð öðrum þáttum í starfsemi fyrirtækisins. Hlutverk regluvörslu er einkum að tryggja eftirfylgni Arion banka við lög og reglur sem beinast að bankanum sem fjármálafyrirtæki með leyfi til verðbréfaviðskipta.

Það þýðir að undir ábyrgðarsvið regluvörslu falla eftirtalin málefni:

  • Eftirlit með hagsmunaárekstrum, s.s. verkefni tengd kínamúrum, starfsmannaviðskiptum, stopp-listum o.fl.
  • Fræðsla og ráðgjöf til starfsmanna og yfirstjórnar varðandi skyldur bankans samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti
  • Önnur verkefni s.s. skýrslugerð og samskipti við stjórnvöld (einkum Fjármálaeftirlitið)

Verklagsreglur vegna hagsmunaárekstra

Arion banki býður fjölbreytt úrval vöru og þjónustu fyrir stóran hóp viðskiptavina. Í slíkri viðskiptastarfsemi getur sú staða óhjákvæmilega komið upp að hagsmunir viðskiptavina Arion banka fara ekki saman við hagsmuni Arion banka (þ.m.t. hagsmuni starfsmanna eða aðila tengdum bankanum); og/eða hagsmuni annarra viðskiptavina Arion banka.

Komi þessi staða upp mun bankinn grípa til allra skynsamlegra leiða til að koma í veg fyrir að hagsmunaárekstrar leiði af sér tjón fyrir viðskiptavini.

Hjá Arion banka er skriflegt fyrirkomulag, bæði kerfislegt og stjórnunarlegt, til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra sem gætu falið í sér raunverulega hættu á tjóni fyrir einn eða fleiri viðskiptavini bankans. 

Arion banki fylgir ákveðnu fyrirkomulagi til að hafa stjórn á, og koma í veg fyrir, hagsmunaárekstra. Fyrirkomulagið miðast við að tryggja, að starfsfólk og félög innan Arion banka geri sér grein fyrir hættunni á hagsmunaárekstrum, vinni sjálfstætt og leitist við að vernda hagsmuni viðskiptavina.

Arion banki hefur einnig sett eftirtaldar verklagsreglur sem ætlað er að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra:

  • Reglur um verðbréfaviðskipti starfsmanna
  • Reglur um þátttöku starfsmanna í atvinnurekstri
  • Reglur um gjafir og skemmtanir
  • Reglur um starfsemi greiningardeildar

Nánari upplýsingar veitir Ólöf Embla Einarsdóttir, regluvörður.