Fréttir - Fjölmiðlar - Um bankann - Arion banki
Arion banki - nýtt nafn og ný sýn
Frá og með morgundeginum, 21. nóvember 2009, mun Nýi Kaupþing banki skipta um nafn og heita Arion banki. Nýju nafni fylgir ný stefna og gildi. Með nýjum áherslum er verið svara kröfum viðskiptavina og starfsmanna um breytingar í kjölfar endurskipulagningar bankans sem gerð var vegna hins mikla umróts sem hefur orðið í íslensku og alþjóðlegu efnahagsumhverfi. Nýtt nafn mun auk þess koma í veg fyrir misskilning bæði í almennri umræðu og meðal innlendra og erlendra samstarfsaðila bankans.
Leiðarljós bankans eru fagmennska, framsækni, umhyggja og tryggð þar sem viðskiptavinurinn er í forgrunni. Nýja nafnið er sótt í grískar fornsögur og vísar m.a. til þrautseigju, samvinnu og endurkomu. Efnt var til samkeppni um nýtt nafn meðal starfsmanna bankans og var nafnið valið úr á þriðja hundrað tillagna.
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka, segir breytingarnar tímabærar: ,,Nýtt nafn, stefna og gildi marka nýtt upphaf hjá bankanum, við erum á vissan hátt að segja skilið við hið gamla og ætlum að takast á við þær áskoranir sem eru í samfélaginu af fullum krafti. Markmiðið er að byggja upp traustan, öflugan banka sem vinnur með og fyrir fólkið í landinu.”
Bankanum ber að sýna aðhald og ráðdeild eins og önnur fyrirtæki og heimili í landinu. Þess vegna verður kostnaði vegna breytinganna haldið í lágmarki. Ásýnd útibúa mun taka breytingum á næstu vikum og endurnýjun á markaðsefni verður unnin á meðan eldri birgðir klárast. Eðlileg endurnýjun er því látin koma í veg fyrir óþarfa tilkostnað.
Til baka
| Dagsetning | Fyrirsögn |
|---|---|
| 26.07.2010 | Arion banki styður unglingastarf GSÍArion banki styður unglingastarf GSÍ |
| 22.07.2010 | Viðurkenning frá JP Morgan Chase BankViðurkenning frá JP Morgan Chase Bank |
| 09.07.2010 | Viðskiptavinir fá afslátt hjá yfir 300 fyrirtækjumViðskiptavinir fá afslátt hjá yfir 300 fyrirtækjum |
| 07.07.2010 | Lántakendum erlendra íbúðalána býðst að greiða 5.000 af hverri milljónLántakendum erlendra íbúðalána býðst að greiða 5.000 af hverri milljón |
| 30.06.2010 | Erlend íbúðalán - lausnir í boði til 1. septemberErlend íbúðalán - lausnir í boði til 1. september |
| 25.06.2010 | Arion banki er einn af bakhjörlum Íþróttasambands fatlaðraArion banki er einn af bakhjörlum Íþróttasambands fatlaðra |
| 24.06.2010 | Athugasemd frá Arion bankaAthugasemd frá Arion banka |
| 16.06.2010 | Tilkynning frá Arion banka vegna dóms HæstaréttarTilkynning frá Arion banka vegna dóms Hæstaréttar |
| 04.06.2010 | Upplýsingar um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja og starf umboðsmannsUpplýsingar um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja og starf umboðsmanns |
| 01.06.2010 | Formleg bankastjóraskipti í Arion banka 1. júníFormleg bankastjóraskipti í Arion banka 1. júní |
| 31.05.2010 | Sumaropnun í KringlunniSumaropnun í Kringlunni |
| 27.05.2010 | Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins varðandi yfirtöku Arion banka á 1998 ehf.Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins varðandi yfirtöku Arion banka á 1998 ehf. |
| 21.05.2010 | Áframhaldandi starfsemi BM Vallár tryggðÁframhaldandi starfsemi BM Vallár tryggð |
| 21.05.2010 | 80% viðskiptavina eru ánægðir með þjónustu útibúanna80% viðskiptavina eru ánægðir með þjónustu útibúanna |
| 20.05.2010 | Aðalfundur Arion banka 2010Aðalfundur Arion banka 2010 |
Áfram