Lífeyrir og tryggingar - Einstaklingar - Arion banki

Þegar starfsævinni lýkur gefst góður tími til að njóta lífsins. Með því að sýna fyrirhyggju er hægt að láta langþráða drauma rætast. Hér er að finna upplýsingar um lífeyrisafurðir Kaupþings. Meðal annars er hægt að nýta sér reiknivélar, fylla út rafræna umsókn fyrir viðbótarlífeyrissparnað, skoða yfirlit í Netbanka Kaupþings bera saman ávöxtun mismunandi sjóða og sækja eyðublöð.

Vöxtur

Vöxtur færir þér umtalsverðan ávinning og getur sparað þér tugi þúsunda. Með öflugu samstarfi leiðandi fyrirtækja á sviði fjármála- og tryggingaþjónustu bætum við kjör sameiginlegra viðskiptavina til muna, auðveldum þeim yfirsýn og lækkum kostnað. Vöxtur samanstendur af bankaþjónustu Kaupþings, tryggingaþjónustu frá VÍS, Kaupþingi lífi og Lífís, fjármögnun frá Lýsingu og heimagæslu frá Öryggismiðstöðinni. Sparnaður vex í hlutfalli við fjölda þjónustuþátta sem þú nýtir.

ÞEGAR

ÞEGAR er ráðgjöf og sparnaðarform sem fólk á öllum aldri getur nýtt til að undirbúa sig fjárhagslega fyrir starfslok sín.
Með ÞEGAR færðu góða yfirsýn yfir kjör þín við starfslok auk þess sem þér býðst sparnaðarleið sem er sérstaklega sniðin að því að auka eftirlaunatekjur og valfrelsi um starfslokaaldur