Stjórnendur

Formaður

Paul Horner

Paul er fæddur árið 1962. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi þann 8. ágúst 2019. Paul er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Paul er formaður stjórnar, formaður lánanefndar stjórnar og situr í áhættunefnd, endurskoðunarnefnd og tækninefnd stjórnar.

Paul útskrifaðist með meistaragráðu í tónlist frá University of Oxford árið 1983 og er útskrifaður frá UK Chartered Institute of Bankers. Paul býr að víðtækri alþjóðlegri reynslu af áhættustýringu og stjórnun á sviði viðskiptabanka-, fyrirtækjabanka-, einkabanka- og fjárfestingabankastarfsemi. Paul gegndi margvíslegum stjórnunar- og áhættustýringarstöðum hjá Barclays PLC á árunum 1988 til 2003. Árið 2003 hóf Paul störf hjá The Royal Bank of Scotland Group (RBS) þar sem hann sinnti störfum framkvæmdastjóra og öðrum yfirmannsstöðum hjá Royal Bank of Scotland PLC. Paul var jafnframt skipaður í ýmsar stjórnunarstöður, m.a. á sviði áhættustýringar, allt til ársins 2019. Árin 2012 til 2017 var Paul framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Coutts & Co Ltd. og forstjóri Coutts & Co Ltd., í Zurich frá 2016 til 2017. Árið 2018 var Paul framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Ulster Bank DAC, Dublin, og stjórnarmaður Coutts & Co Ltd., í Zurich frá 2018 til 2021.

Í dag situr Paul í stjórn AIB Group P.L.C. og á sæti í endurskoðunarnefnd stjórnar AIB, rekstrarnefnd stjórnar og sinnir formennsku í áhættunefnd stjórnar. Einnig situr hann í stjórn LHV (UK) Ltd. og á sæti í endurskoðunar-, tilnefningar- og starfskjaranefnd stjórnar, auk þess að sinna formennsku í áhættunefnd stjórnar LHV. Enn fremur situr Paul í stjórn bresks dótturfélags The National Bank of Kuwait og er formaður áhættunefndar stjórnar og situr einnig í endurskoðunarnefnd stjórnar.

Varaformaður

Kristín Pétursdóttir

Kristín er fædd árið 1965. Hún var fyrst kjörin í stjórn Arion banka á aðalfundi 15. mars 2023. Hún er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Kristín er varaformaður stjórnar og situr í áhættunefnd stjórnar, starfskjaranefnd stjórnar og tækninefnd stjórnar.

Kristín útskrifaðist sem hagfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1991 og MBA frá Norges Handelshöyskole árið 1993.

Kristín var annar stofnenda Auðar Capital og starfaði sem forstjóri þess fyrirtækis frá 2007 til 2013 og sem stjórnarformaður frá 2013-2017 (síðar Virðing hf.). Kristín var einnig stjórnarformaður Kviku banka á árunum 2018-2020, forstjóri Mentor hf. 2015-2017, framkvæmdarstjóri fjárstýringar Kaupþings banka 1997-2005 og aðstoðarforstjóri Singer & Friedlander 2005-2007. Kristín hefur setið í stjórnum Ölgerðarinnar, Tals, Yggdrasils, Singer & Friedlander, Viðskiptaráðs, Eyris Invest, Samtaka atvinnulífsins og Samtaka fjármálafyrirtækja. Kristín hefur einnig setið í fjárfestingaráðum framtakssjóðanna Eddu, Freyju og Auðar I.

Í dag er Kristín sjálfstætt starfandi stjórnendaráðgjafi og situr í stjórnum Grid ehf. og Miðeindar ehf.

Stjórnarmaður

Gunnar Sturluson

Gunnar er fæddur árið 1967. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi þann 8. ágúst 2019. Hann er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Gunnar situr í lánanefnd stjórnar, áhættunefnd stjórnar og er formaður endurskoðunarnefndar stjórnar.

Gunnar útskrifaðist með Cand.Jur gráðu frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1992, útskrifaðist með LL.M gráðu frá Háskólanum í Amsterdam árið 1995 og hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 1993 og fyrir Hæstarétti Íslands árið 1999.

Gunnar hefur starfað hjá LOGOS lögmannsþjónustu síðan 1992 og starfar þar í dag sem meðeigandi, áður starfaði hann sem faglegur framkvæmdastjóri á árunum 2001-2013. Gunnar er einnig forseti FEIF, alþjóðasamtaka Íslandshestafélaga og hefur sinnt þeirri stöðu frá 2014 og situr í stjórn Sviðslistamiðstöðvar Íslands. Einnig situr hann í stjórn Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss. Gunnar hefur sinnt ýmsum stjórnarstörfum og var meðal annars stjórnarmaður í GAMMA hf. 2017-2019, stjórnarformaður Ríkisútvarpsins ohf. 2016-2017, var stjórnarmaður í gerðardómi Viðskiptaráðs Íslands, stjórnarformaður Íslenska dansflokksins 2013- 2016 og kjörinn í landskjörstjórn af Alþingi 2013- 2017. Þá sinnti Gunnar stundakennslu í samkeppnisrétti við lagadeild Háskóla Íslands 1995-2007.

Stjórnarmaður

Liv Fiksdahl

Liv er fædd árið 1965. Hún var fyrst kjörin í stjórn Arion banka á aðalfundi 20. mars 2019. Hún er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Liv sinnir formennsku í starfskjaranefnd stjórnar og tækninefnd stjórnar. Hún situr einnig í endurskoðunarnefnd stjórnar.

Liv útskrifaðist með gráðu í fjármálum og stjórnun frá Trondheim Business School (í dag NTNU) árið 1986. Árið 2018 kláraði Liv Programs in Big Data-Strategic Decisions and Analysis, The Innovative Technology Leader and Design Thinking frá Stanford University og Advanced Management Program for Executives in Management, Innovation and Technology frá Massachusetts Institute of Technology (MIT).

Liv gegndi áður ýmsum stjórnarstöðum hjá DNB og var hluti af framkvæmdastjórn bankans í 10 ár, m.a. sem aðstoðarframkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs/rekstrarsviðs (e. Group EVP, CIO/COO and Operations). Liv hefur einnig víðtæka reynslu frá DNB og hefur gegnt ýmsum öðrum störfum innan bankans. Áður starfaði Liv m.a. sem viðskiptastjóri fyrirtækja hjá Danske Bank/Fokus Bank og Svenska Handelsbanken. Liv hefur setið í fjölmörgum stjórnum, m.a. hjá Scandinavian Airlines SAS AB, Intrum AB, BankAxept, Sparebankforeningen, Doorstep, Finans Norge og í bæjarstjórn sveitarfélagsins Þrándheims.

Í dag er Liv aðstoðarframkvæmdastjóri innan fjármálaþjónustu hjá Capgemini Invent í Noregi og situr í stjórnum Posten Norge AS og Hexagon Purus ASA.

Stjórnarmaður

Steinunn Kristín Þórðardóttir

Steinunn er fædd árið 1972. Hún var fyrst kjörin í stjórn Arion banka á hluthafafundi 30. nóvember 2017. Steinunn er hluthafi í bankanum (hlutafjáreign hennar er 12.000 hlutir) og er óháður stjórnarmaður. Steinunn sinnir formennsku í áhættunefnd stjórnar og situr í starfskjaranefnd stjórnar og tækninefnd stjórnar.

Steinunn er með meistaragráðu í alþjóðlegri stjórnun (MIM) frá Thunderbird, Arizona og BA gráðu í alþjóðaviðskiptum og stjórnmálafræði frá University of South Carolina.

Steinunn sat áður í ýmsum stjórnum í Evrópu og var í stjórn Bankasýslu ríkisins árið 2011. Steinunn starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá Beringer Finance í Noregi frá 2015 til 2017 og sem tímabundinn framkvæmdastjóri hjá Beringer Finance á Íslandi auk þess að gegna stöðu forstöðumanns alþjóðadeildar fyrirtækisins á sviði matvæla og sjávarfangs árið 2017. Þá stofnaði Steinunn ráðgjafafyrirtækið Akton AS og Acton Capital AS í Noregi og hefur unnið þar við fjárfestingar og ráðgjöf. Hún starfaði áður hjá Íslandsbanka (síðar Glitni), sem framkvæmdastjóri starfsemi bankans á Bretlandi og fyrir það leiddi hún alþjóðalánveitingar sem forstöðumaður bankans.

Í dag vinnur Steinunn með tæknifyrirtækjum í Noregi bæði sem fjárfestir og ráðgjafi hvað varðar stefnumótun. Hugbúnaðarfyrirtækin sem hún vinnur með eru alþjóðleg uppskölunarfyrirtæki, og er Steinunn er stjórnarformaður Acton Capital AS. Hún er jafnframt stjórnarformaður Norsk-íslenska viðskiptaráðsins. Þá situr Steinunn í tilnefningarnefnd Símans og einnig í stjórn YES-EU AS og Alda hf. Enn fremur er hún leiðbeinandi ungra hæfileikaríkra kvenna og stofnandi Women Empower Women og er stjórnarformaður góðgerðasamtaka í Noregi.

Varamenn stjórnar

  • Einar Hugi Bjarnason, lögmaður
  • Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir, lögfræðingur

Heimir Þorsteinsson, löggildur endurskoðandi, hefur verið kjörinn af hluthafafundi í endurskoðunarnefnd stjórnar.

Starfsreglur stjórnar

Undirnefndir stjórnar

Samkvæmt starfsreglum stjórnar Arion banka er stjórn bankans heimilt að setja á fót undirnefndir til að fjalla um tiltekna þætti í rekstri bankans. Eigi síðar en mánuði eftir aðalfund skipar stjórn nefndarmenn í undirnefndir ásamt því að meta hvort ráða beri aðila utan stjórnar í einstakar undirnefndir, með það að markmiði að styrkja starf þeirra með aukinni sérfræðiþekkingu. Stjórn hefur sett á fót fimm undirnefndir; endurskoðunarnefnd, áhættunefnd, lánanefnd, starfskjaranefnd og tækninefnd.

Undirnefndir stjórnar setja sér starfsreglur sem eru staðfestar af stjórn bankans og nefndarformenn upplýsa stjórn reglulega um störf sín og verkefni en auk þess hefur stjórn aðgang að öllum gögnum og fundargerðum undirnefnda.

Endurskoðunarnefnd (BAC)

Meginhlutverk endurskoðunarnefndar stjórnar er að stuðla að gæðum þegar kemur að lögskipaðri endurskoðun árs- og árshlutauppgjöra bankans og hafa eftirlit með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits félagsins, innri endurskoðun og áhættustjórnun, að því er varðar reikningsskil. Nefndina skipa Gunnar Sturluson, formaður nefndarinnar, Liv Fiksdahl, Paul Horner og Heimir Þorsteinsson. Stjórn skipaði Heimi Þorsteinsson, löggildan endurskoðanda og aðila utan stjórnar, fyrst í júlí 2017.

Starfsreglur endurskoðunarnefndar stjórnar

Áhættunefnd (BRIC)

Meginhlutverk áhættunefndar stjórnar snýr að áhættustjórnun, m.a. að meta áhættustefnu og áhættuvilja bankans. Nefndina skipa Steinunn Kristín Þórðardóttir, formaður nefndarinnar, Gunnar Sturluson, Kristín Pétursdóttir og Paul Horner.

Starfsreglur áhættunefndar stjórnar

Lánanefnd (BCC)

Meginhlutverk lánanefndar er að fjalla um lánamál sem eru umfram þær heimildir sem undirnefndir hennar hafa. Nefndina skipa Paul Horner, formaður nefndarinnar, og Gunnar Sturluson. Starfsreglur lánanefndar eru ekki birtar opinberlega.

Starfskjaranefnd (BRC)

Meginhlutverk starfskjaranefndar stjórnar er að útbúa árlega starfskjarastefnu fyrir bankann. Nefndin er jafnframt ráðgefandi fyrir stjórn varðandi starfskjör bankastjóra, framkvæmdastjóra, regluvarðar og innri endurskoðanda, og fyrirkomulag á kaupaukakerfi bankans og öðrum starfstengdum greiðslum. Nefndina skipa Liv Fiksdahl, formaður nefndarinnar, Kristín Pétursdóttir og Steinunn Kristín Þórðardóttir.

Starfsreglur starfskjaranefndar stjórnar

Tækninefnd (BTC)

Meginhlutverk tækninefndar stjórnar er að vera stjórn og framkvæmdastjórn bankans til ráðgjafar um tækniþróun bankans á næstu árum. Nefndina skipa Liv Fiksdahl, formaður nefndarinnar, Kristín Pétursdóttir, Paul Horner og Steinunn Kristín Þórðardóttir.

Starfsreglur tækninefndar stjórnar

bankastjóri

Benedikt Gíslason

Benedikt er fæddur árið 1974. Hann tók við starfi bankastjóra Arion banka 1. júlí 2019.

Benedikt hóf störf hjá FBA (síðar Íslandsbanka) árið 1998, sinnti margvíslegum stjórnunarstörfum hjá Straumi-Burðarás, var framkvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá FL Group og framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs MP banka. Benedikt starfaði um tíma sem ráðgjafi hjá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu og var varaformaður starfshóps stjórnvalda um afnám fjármagnshafta á árunum 2013-2016. Hann sat í stjórn Kaupþings á árunum 2016-2018 og var ráðgjafi Kaupþings í málefnum Arion banka. Hann tók sæti í stjórn Arion banka í september 2018 og var í stjórn bankans þar til hann tók við starfi bankastjóra.

Benedikt útskrifaðist með C.Sc. gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1998.

Aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs 

Iða Brá Benediktsdóttir

Iða Brá Benediktsdóttir er fædd 1976. Hún tók við starfi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs í júlí 2017 og starfi aðstoðarbankastjóra í apríl 2022.

Iða Brá hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999. Frá þeim tíma hefur hún gegnt ýmsum störfum innan bankans, nú síðast sem framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs frá 2016 til 2017. Áður hafði Iða Brá m.a. verið forstöðumaður samskiptasviðs, einkabankaþjónustu og í fjárstýringu bankans. Iða hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja; Sparisjóðs Ólafsfjarðar, AFL – sparisjóðs, fasteignafélagsins Landfesta og HB Granda hf. Iða Brá er varaformaður stjórnar Varðar trygginga hf.

Iða Brá er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er með MSc í fjármálum frá Erasmus Graduate School of Business í Hollandi og með próf í verðbréfaviðskiptum.

Framkvæmdastjóri reksturs og menningar

Birna Hlín Káradóttir

Birna Hlín er fædd árið 1978. Hún tók við starfi yfirlögfræðings Arion banka í september 2019 og tók sæti í framkvæmdastjórn í júní 2020. Í september 2023 tók Birna við starfi framkvæmdastjóra reksturs og menningar.

Frá árinu 2016 var Birna meðeigandi og yfirlögfræðingur Fossa markaða. Hún var yfirlögfræðingur Straums fjárfestingarbanka á árunum 2011 til 2015. Birna Hlín starfaði hjá Straumi-Burðarás fjárfestingabanka á árunum 2007 til 2011 og var yfirlögfræðingur félagsins frá árinu 2009. Birna hefur kennt lög um fjármálamarkaði o.fl. í Háskólanum í Reykjavík og Háskóla Íslands. Hún hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja og félaga hérlendis og erlendis.

Birna Hlín er með AMP-gráðu frá IESE Business School í Barcelona og lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er með málflutningsréttindi og próf í verðbréfaviðskiptum.

Framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs

Björn Björnsson

Björn er fæddur árið 1980. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs Arion banka í mars 2023.

Frá árinu 2015 starfaði Björn hjá Boston Consulting Group (BCG) í Ástralíu og á Norðurlöndum með áherslu á stefnumarkandi verkefni í upplýsingatækni fyrir fjármálastofnanir. Áður en Björn hóf störf hjá BCG vann hann sem stjórnandi og sérfræðingur hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum, m.a. sem framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Byr.

Björn er með BS próf í tölvunarfræði og MS próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og MBA próf frá Melbourne Business School.

Framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs

Hákon Hrafn Gröndal

Hákon Hrafn Gröndal er fæddur 1988. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs í apríl 2022.

Hákon Hrafn Gröndal hóf störf hjá Arion banka 2012 og starfaði fyrstu árin í útibúi bankans á Höfða. Síðan þá hefur Hákon sinnt ýmsum störfum innan bankans tengdum fjármálaráðgjöf og útlánum og setið í ýmsum stjórnum fyrir hönd bankans. Frá árinu 2013 sinnti Hákon starfi lánastjóra á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði.

Hákon er viðskiptafræðingur frá Griffith University, með MSc í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands og með próf í verðbréfaviðskiptum.

Framkvæmdastjóri markaða

Jóhann Möller

Jóhann Möller er fæddur 1979. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra markaða í maí 2022.

Jóhann Möller hefur verið framkvæmdastjóri Stefnis frá árinu 2020. Hann hefur starfað á fjármálamarkaði í rúm 20 ár og hjá Stefni frá árinu 2006 við stýringu á innlendum hlutabréfasjóðum auk þess sem hann veitti hlutabréfateymi félagsins forstöðu á árunum 2017-2020.

Jóhann er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með próf í verðbréfaviðskiptum.

Framkvæmdastjóri fjármálasviðs

Ólafur Hrafn Höskuldsson

Ólafur Hrafn er fæddur árið 1981. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs í september 2021.

Ólafur Hrafn hóf störf hjá Arion banka árið 2019 er hann tók við starfi forstöðumanns stefnumótunar og þróunar á skrifstofu bankastjóra. Ólafur starfaði hjá Royal Bank of Scotland í London og New York á árunum 2010 til 2016. Árið 2016 tók hann við starfi framkvæmdastjóra hjá Títan fjárfestingafélagi sem hann sinnti til ársins 2019. Áður vann Ólafur Hrafn meðal annars hjá CreditInfo í Þýskalandi og Straumi fjárfestingabanka. Ólafur situr í stjórn Varðar og Landeyjar.

Ólafur Hrafn útskrifaðist með cand.oecon-gráðu frá Háskóla Íslands árið 2006 með reikningshald og endurskoðun sem aðalgrein. Hann hefur öðlast löggildingu til fjárfestingaráðgjafar í Bretlandi (UK FSA approved person status) og í Bandaríkjunum (US FINRA series 79).

Framkvæmdastjóri áhættustýringar

Úlfar Freyr Stefánsson

Úlfar Freyr er fæddur árið 1981. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra áhættustýringar í maí 2020.

Úlfar Freyr hóf störf í áhættustýringu Arion banka árið 2013 eftir að hafa starfað hjá Kaupþingi frá árinu 2010, m.a. sem framkvæmdastjóri áhættustýringar. Úlfar var forstöðumaður eignasafnsáhættu Arion banka á árunum 2013-2015 er hann tók við sem forstöðumaður efnahagsáhættu innan áhættustýringar.

Úlfar er með doktors- og meistarapróf í stærðfræði frá Georgia Institute of Technology og B.S. gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur jafnframt lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.