Framtíðarreikningur hentar vel sem langtímasparnaður

Með reglulegum sparnaði til lengri tíma byggist smám saman upp góður fjárhagslegur grunnur sem kemur barninu til góða seinna meir.

Framtíðarreikningur
0-18 ára

Framtíðarreikningur er góð gjöf fyrir þá sem vilja leggja góðan grunn að framtíð barna og unglinga. Með góðu fordæmi getum við kennt börnunum okkar að meta gildi sparnaðar.

Framtíðarreikningur er verðtryggður innlánsreikningur sem gefur hæstu vexti almennra verðtryggðra innlánsreikninga. Innstæðan er laus á 18 ára afmælisdegi í 1 mánuð en binst aftur að þeim tíma loknum og verður frá því uppsegjanleg með þriggja mánaða fyrirvara.

Ef þú vilt stofna Framtíðarreikning fyrir barn bjóðum við þér að koma í útibú okkar eða að hafa samband í síma 444 7000.

Eiginleikar:

  • Hæstu vextir almennra innlánsreikninga
  • Verðtryggður reikningur
  • Er laus til úttektar við 18 ára aldur
  • Hægt er að stofna eða leggja inn á reikninginn hvenær sem er fyrir 15 ára aldur
  • Eftir 15 ára aldur lokast reikningurinn fyrir innborganir aðrar en þær sem gerðar eru með reglulegum mánaðarlegum sparnaði af reikningi hjá Arion banka

Fermingarbörn sem leggja 30 þúsund krónur inn á Framtíðarreikning sinn fá mótframlag frá bankanum. 

Vextir
Til 18 ára aldurs2,40%

Reiknaðu sparnaðinn

kr.
kr.

Niðurstaða