Um reikninginn
Fjárhæðaþrep 30 er hávaxtareikningur með óverðtryggða breytilega vexti. Vextirnir eru þrepaskiptir eftir fjárhæð. Engin lágmarksupphæð er á reikningnum.
Fjárhæðaþrep 30 er frábrugðinn öðrum sparnaðarreikningum bankans að því leyti að binditími reikningsins byrjar að telja þegar úttektarbeiðni er gerð, en ekki þegar lagt er inn á reikninginn. Úttekt fer þannig fram á 31. degi eftir dagsetningu úttektarbeiðninnar.
Úttekt er framkvæmd í netbanka eins og um venjulega millifærslu sé að ræða og er millifærð 31 degi síðar. Einnig má framkvæma úttektarbeiðni í næsta útibúi Arion banka gegn gjaldi skvt. verðskrá bankans.
Eiginleikar:
- Óverðtryggður innlánsreikningur
- Þrepaskiptir vextir eftir fjárhæð
- Vextir eru greiddir út mánaðarlega*
- Engin lágmarksinnistæða er á reikningnum
- Úttektarbeiðnir eru gjaldfrjálsar í netbanka
Vextir
Fjárhæðaþrep 30| Þrep | Upphæð | Ársvextir |
|---|
| 1. þrep | 0-10 milljónir | 4,05% |
| 2. þrep | 10-25 milljónir | 4,35% |
| 3. Þrep | 25-50 milljónir | 4,65% |
| 4. þrep | 50 milljónir+ | 4,95% |
* Hægt er að fá vextina greidda út á annan reikninginn en Fjárhæðaþrep 30, en ef annar ráðstöfunarreikningur er ekki valinn leggjast vextir við höfuðstól reikningsins.