
Fullt af fjöri í allt sumar!
#ArionSport á samfélagsmiðlum

#ArionSport á samfélagsmiðlum
Eftirspurnin var gríðarleg í fyrra og fötin kláruðust á mettíma. Í ár ákváðum við að breyta aðeins til og bæta við sérstakri íþróttatreyju, meðal annars með HM í fótbolta í huga, ásamt nýjum fötuhatti. Engar áhyggjur — peysan vinsæla er áfram hluti af línunni.



Við ætlum að vera með alls konar fjármálafræðslu og sprell á samfélagsmiðlum í sumar þar sem markmiðið er fyrst og fremst að brjóta upp daginn í sumarvinnunni og gera eitthvað skemmtilegt.
Við hvetjum alla unglinga til að taka upp hresst myndband af sér að störfum, tagga Arion, merkja það með #ArionSport og birta á Instagram eða TikTok.
Við hittum síðan hópana sem gerðu eftirminnilegustu myndböndin og færum þeim fullan farm af hamingju og gleði; Arion Sport föt, gjafabréf o.fl.

Allir unglingar sem eru fæddir 2010, 2011 og 2012 og fá launin sín greidd inn á reikning hjá okkur gætu átt von á veglegri sumargjöf.
Í lok sumars ætlum við að draga út fimm heppna og leggja 100.000 kr. inn á reikninginn þeirra.
Ekki þarf að skrá sig sérstaklega til leiks – nóg er að fá eina launagreiðslu inn á reikninginn til að eiga möguleika á að hreppa hnossið.
Við ætlum að gefa öllum unglingum sem eru 16 og 17 ára Arion Sport peysu í sumargjöf ef þeir sækja um viðbótarlífeyrissparnað hjá Arion (Lífeyrisauka).
Forráðamaður þarf að samþykkja umsókn með rafrænni undirritun samnings.
Þetta er einfalt
Þú fyllir út formið hér fyrir neðan
Við höfum í kjölfarið samband við forráðamann
Um leið og samningurinn er klár færðu upplýsingar um hvar má sækja peysuna.

Seðlar eru að verða sjaldséðir og því getur verið hentugt að millifæra vasapeninginn beint á debetkort barnsins.
Foreldrar og forráðamenn geta sótt um debetkort fyrir börnin sín við 9 ára aldur. Kortið kostar ekkert og börn greiða að sjálfsögðu engin færslugjöld.
Framtíðarreikningur er verðtryggður reikningur sem hentar vel fyrir langtímasparnað og er því frábært veganesti út í lífið.
Foreldrar og forráðamenn geta stofnað reikninginn með örfáum smellum í Arion appinu.
Til að geta átt viðskipti með sjóði þurfa forráðamenn að byrja á því að stofna til verðbréfaviðskipta fyrir barnið.
Þú velur upphæðina sem hentar – ekkert lágmark og enginn kostnaður við kaup eða sölu.
Íbúðasparnaður er frábær kostur fyrir þau sem vilja leggja drög að framtíðinni.
Það góða við reikninginn er að þú getur notað peninginn í hvað sem er, hvort sem það er upp í íbúð, bílpróf, ferðalög eða bara eitthvað allt annað.
Forsjáraðilar geta stofnað Íbúðasparnað í Arion appinu.

Fermingarbörn og jafnaldrar sem leggja pening inn á Framtíðarreikning, Íbúðasparnað eða fjárfesta í sjóðum Stefnis fyrir 31. desember 2026 geta fengið allt að 32.000 kr. í mótframlag frá okkur.
Ef lagðar eru 30.000 kr. inn á Framtíðarreikning eða Íbúðasparnað fæst 6.000 kr. mótframlag. Einnig fæst 5% af þeirri upphæð sem lögð er inn umfram 30.000 kr. en þó að hámarki 200.000 kr. Það sama gerum við ef keypt er í sjóðum Stefnis.
Því getur mótframlagið verið allt að 32.000 kr. í heildina.
Ef greitt er inn á Framtíðarreikning eða Íbúðasparnað í gegnum Arion appið, netbanka eða með öðrum hætti er mótframlagið greitt næsta virka dag.
Ef keypt er í sjóðum Stefnis í gegnum Arion appið, netbanka eða með öðrum hætti er mótframlagið greitt innan mánaðar. Ef keypt er í nokkrum sjóðum dreifist mótframlagið í sjóðina í sömu hlutföllum og keypt var.
Mótframlagið er aðeins afgreitt ef öll skilyrðum er fullnægt. Athugið að eitt mótframlag er fyrir hvert fermingarbarn.

Við leggjum áherslu á að auðvelda fjölskyldum að halda utan um fjármálin sín með einföldum og þægilegum hætti.
Í Arion appinu ertu ekki einungis með góða yfirsýn yfir fjármálin þín heldur ertu líka með góða yfirsýn yfir fjármál barnanna. Þar að auki geta makar veitt umboð á reikninga sín á milli og þar með gert fjármál heimilisins enn einfaldari og þægilegri.

Að fara í bankann og stofna reikning, fá aðgang að netbanka og fá sitt fyrsta kort til að greiða með eru allt saman stór skref í lífi barna og unglinga.
Hluti af því að þroskast og verða fullorðin er að læra smám saman að taka ákvarðanir um peninga og skilja hvernig fjármál virka. Það þarf þó að gerast í smáum skrefum og mikilvægt er að kenna börnum og unglingum á fjármál líkt og á aðra stóra þætti í lífinu.

Í fyrstu virðist það kannski ekki mikil breyting á lífinu að verða 18 ára. Það er eins að vakna 17 ára og 18 ára og verkefni dagsins eru þau sömu. Lagalega er þó mjög mikill munur á milli þessara tveggja daga og það er ótalmargt sem breytist þegar klukkan slær miðnætti á síðasta degi sautjánda aldursársins.

Varstu að byrja í fyrstu vinnunni? Til hamingju með það! Það er stórt skref að hefja störf á fyrsta vinnustaðnum og margt sem hafa þarf í huga. Við tókum saman nokkur hagnýt ráð sem gott er að hafa á bak við eyrað.

Viðbótarlífeyrissparnaður er ein tegund séreignarsparnaðar. Um er að ræða sparnaðarform sem felur í sér að launþegi má ráðstafa allt að 4% af heildarlaunum sínum í viðbótarlífeyrissparnað og launagreiðandi greiðir 2% mótframlag.

Ísabella Jóhannsdóttir er sundgarpur og fermingarbarn sem býr ásamt foreldrum sínum, systrum og hundinum Perlu á Akureyri. Ísabella lítur á það sem allstór tímamót að fermast.