22. nóvember 2023
Birting lýsingar og hlutafjárútboð Ísfélags hf.
Ísfélag, elsta starfandi hlutafélag landsins, hefur birt lýsingu vegna almenns útboðs og fyrirhugaðrar skráningar á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.
LESA NÁNAREigendur breytanlegra skuldabréfa Alvotech hafa ákveðið að nýta rétt sinn til að breyta skuldabréfum að fjárhæð 106 milljóna Bandaríkjadala, jafnvirði um 13 milljarðar króna, í hlutafé á gengi sem verðmetur Alvotech á um 300 milljarða íslenskra króna.
Alvotech gaf út breytanleg skuldabréf fyrir 300 milljónir dala, jafnvirði 36 milljarða króna á þáverandi gengi, í lok árs 2018. Eigendur skuldabréfanna höfðu rétt til að breyta skuldabréfum í hlutafé og nú hafa eigendur eins fjórða af virði bréfanna ákveðið að nýta sér rétt sinn.
Alþjóðlegi fjárfestingarbankinn Morgan Stanley og fyrirtækjaráðgjöf Arion banka voru umsjónaraðilar viðskiptanna og höfðu milligöngu um aðkomu erlendra fagfjárfesta.
Samhliða þessu hefur Alvotech samið um hagstæðari kjör á eftirstöðvum skuldabréfanna, þar sem vextir koma til með að lækka, gjalddagi er lengdur til loka ársins 2025 og frekari breytiréttur felldur niður. Þá hefur Alvotech stækkað skuldabréfaflokkinn um ríflega 6 milljarða króna, en erlendir fagfjárfestar hafa skrifað sig fyrir þeirri fjárhæð. Skuldir Alvotech lækka því við þetta sem nemur um 7 milljörðum króna, með skuldbreytingu upp á 13 milljarða króna að frádreginni 6 milljarða stækkun á skuldabréfaflokknum.
„Þetta er gríðarlega stór áfangi fyrir Alvotech og staðfesting á því öfluga starfi sem starfsmenn Alvotech hafa sinnt að undanförnu. Við teljum þetta staðfesta tiltrú fjárfesta á félaginu,“ segir Róbert Wessman, stjórnarformaður Alvotech. Breytingin styður við þau markmið Alvotech að auka aðgengi fólks um allan heim að hágæða lyfjum á hagstæðara verði.
Alvotech vinnur að þróun sjö líftæknihliðstæðulyfja, þar á meðal hliðstæðu lyfsins Humira®, sem er söluhæsta lyf heims. Líftæknilyf, eru framleidd með hjálp lífvera og eru margfalt flóknari og dýrari í þróun og framleiðslu en hefðbundin lyf. Á komandi árum munu einkaleyfi margra líftæknilyfja renna út, sem veitir fyrirtæki á borð við Alvotech tækifæri til að setja líftæknihliðstæðulyf á markað.
Alvotech er í meirihlutaeigu Aztiq Pharma Partners. Alvogen er einnig stór hluthafi í Alvotech, en meðal eigenda eru tveir af stærstu fjárfestingasjóðum í heimi, CVC Capital Management og Temasek í Singapore. Aðrir hluthafar eru meðal annars alþjóðlegi fjárfestingasjóðurinn Yas Holding og japanska lyfjafyrirtækið Fuji Pharma, ásamt Strungmann fjölskyldunni sem er stærsti einstaki fjárfestirinn í Biontech.
Heildarfjöldi starfsmanna Alvotech var 475 um síðustu áramót og áætlanir gera ráð fyrir að fjöldi starfsmanna í árslok 2021 verði 590, megnið af þeim eru staðsettir á Íslandi.
Ísfélag, elsta starfandi hlutafélag landsins, hefur birt lýsingu vegna almenns útboðs og fyrirhugaðrar skráningar á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.
LESA NÁNARNú í morgun voru hlutabréf Kaldalóns hf. tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Kaldalón er eitt stærsta fasteignafélag Íslands og félag í örum vexti.
LESA NÁNARAlmennu hlutafjárútboði Hampiðjunnar hf. lauk kl. 14:00 þann 2. júní. Alls bárust um 3.700 áskriftir að andvirði um 32,3 ma.kr. sem samsvarar ríflega þrefaldri eftirspurn
LESA NÁNARHampiðjan, leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í þróun, sölu og þjónustu á framúrskarandi veiðarfærum til fiskiskipa, búnaði til fiskeldis og þróun og framleiðslu á ofurköðlum, hefur birt lýsingu vegna...
LESA NÁNARIce Fish Farm hefur lokið 44 milljóna evra hlutafjáraukningu, sem nemur um 6,5 milljörðum króna. Um er að ræða útgáfu rúmlega 18 milljóna nýrra hlutabréfa í félaginu.
LESA NÁNARAU 22 ehf., eigandi 29,3% hlutafjár í Origo hf., lagði fram valfrjálst tilboð til hluthafa Origo hf. um kaup á hlutum þeirra í félaginu á kr. 101 á hlut og rennur tilboðið út kl. 13:00 á morgun, 22...
LESA NÁNARAU 22 ehf., eigandi 29,3% hlutafjár í Origo hf., hefur lagt fram valfrjálst tilboð til hluthafa Origo hf. um kaup á hlutum þeirra í félaginu á kr. 101 á hlut.
LESA NÁNARFramtakssjóðurinn Horn IV slhf. hefur fjárfest í Eðalfangi og verður með kaupunum stærsti einstaki hluthafi félagsins. Um er að ræða útgáfu nýs hlutafjár en jafnframt leggja núverandi hluthafar...
LESA NÁNARNýverið fór fram vel heppnuð hlutafjáraukning og skráning Amaroq Minerals á First North vaxtarmarkaðinn á Íslandi. Um var að ræða alþjóðlega hlutafjáraukningu þar sem félagið tryggði sér 30 milljónir...
LESA NÁNARHlutafjárútboð íslenska fjarskiptafyrirtækisins Nova Klúbbsins hf. hefst kl. 10.00 föstudaginn 3. júní og mun standa yfir til klukkan 16.00 föstudaginn 10. júní.
LESA NÁNARVið notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur og hvernig þú getur stjórnað þeim með því að smella á "Stillingar fótspora".