24. september 2024
Arion semur við EIF um lánaábyrgðir – allt að 15 milljarðar í ný lán til smárra og meðalstórra fyrirtækja
Evrópski fjárfestingasjóðurinn (EIF) og Arion banki hafa undirritað ábyrgðarsamning með það að...
LESA NÁNAREvrópski fjárfestingasjóðurinn (EIF) og Arion banki hafa undirritað ábyrgðarsamning með það að markmiði að styðja við frumkvöðla hér á landi. Ábyrgð frá EIF, sem er studd af InvestEU áætlun Evrópusambandsins, gerir Arion banka kleift að lána allt að 15 milljarða króna til íslenskra fyrirtækja á hagstæðari kjörum en ella. Stuðningi InvestEU er ætlað að styðja við þrjú ólík svið hér á landi: Fjárfestingar á sviði sjálfbærni, lánveitingar til nýsköpunar og stafvæðingar og menningu og skapandi greinar.
Við undirritun samningsins í Reykjavik tók Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka til máls: “Það er einstaklega ánægjulegt að endurvekja samstarf okkar við Evrópska fjárfestingasjóðinn. Samstarf okkar fyrir um átta árum var grunnurinn að stuðningi Arion við fjölmörg nýsköpunarverkefni t.a.m. á sviði fiskeldis, gagnavera, umhverfisvænna orkugjafa og húðvara. Nú nær samstarfið til enn fleiri sviða með áherslu á nýsköpun og stafvæðingu samfélagsins, menningu og skapandi greinar og sjálfbærni- og umhverfismál. Samstarf okkar og fjárfestingarsjóðsins er mikilvægt og auðveldar okkur að lána til verkefna á þessum sviðum. Það gerir okkur kleift að fjármagna verkefni sem eru komin skemmra á veg en ella og á hagstæðari kjörum, uppfylli þau skilyrði samningsins.”
Þegar kemur að fjárfestingum á sviði sjálfbærni þá gerir ábyrgð frá Evrópska fjárfestingasjóðnum Arion kleift að styðja enn frekar við grænar fjárfestingar sem stuðla að umhverfisvænna efnahagslífi og fjárfestingar sem stuðla að inngildingu. Sá hluti ábyrgðanna sem er ætlaður til stuðnings við nýsköpun og stafvæðingu mun auka aðgengi smárra og meðalstórra fyrirtækja, sem leggja stund á fjárfrekar rannsóknir, að fjármagni og stuðla almennt að stafvæðingu fyrirtækja hér á landi. Síðast en ekki síst gerir samningurinn Arion kleift að auka aðgengi kvikmyndageirans hér á landi, sem hefur eflst verulega undanfarin ár, og tengdra greina að lánsfjármagni og þannig stuðla að frekari styrkingu þeirra og aukinni hæfni til að takast á við þær áskoranir sem fram undan eru.
„Þetta er annað verkefnið sem við komum að á Íslandi eftir að landið gerðist aðili að InvestEU áætluninni og við sjáum fram á að það muni hafa veruleg áhrif,“ sagði forstjóri EIF, Marjut Falkstedt, við undirritunina. „Við unnum fyrst með Arion fyrir um áratug og það er ánægjulegt að geta nýtt áfram styrkleika bankans við að hrinda meginmarkmiði okkar í framkvæmd; að fjármagna þau smáu og meðalstóru fyrirtæki sem mest þurfa á fjármagni að halda. Við erum hluti af Evrópsku fjárfestingarbankasamstæðunni og standa loftlagsmál og sjálfbærni okkur – eins og Arion banka – nærri. Að auki, þá gleður það okkur að saman munum við beina sjónum okkar sérstaklega að íslenskum fyrirtækjum sem starfa á sviði nýsköpunar og stafvæðingar og menningar og skapandi lista.“
Á sviði sjálfbærni mun Arion banki horfa til fjármögnunar fjölbreyttra verkefna eins og sjálfbærs landbúnaðar, endurnýjanlegra orkugjafa, skilvirkrar orkunýtingar, hreinna samgangna og mengunarvarna og fráveitustýringar. Þegar kemur að ábyrgðum á sviði stafvæðingar þá er gert ráð fyrir að fyrst og fremst verði um að ræða lánveitingar til fyrirtækja í örum vexti og nýsköpunar þegar kemur að ferla- og vöruþróun á sviði fiskveiða og -eldis, raunvísinda og verkfræði og líftækni.
Sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi Clara Ganslandt tók einnig til máls við undirritunina: „Í um þrjá áratugi hafa íslensk fyrirtæki, háskólar og rannsóknar- og menningarstofnanir tekið þátt í ýmsum áætlunum Evrópusambandsins. Þau hafa náð góðum árangri og eru mikils metin af alþjóðlegum samstarfsaðilum sínum. Ég hlakka til að fylgjast með hvernig ábyrgðarsamningur EIF og Arion banka sem undirritaður var hér í dag mun hjálpa smáum og meðalstórum á Íslandi sem starfa á sviði umhverfismála, tækni og menningar.“
Ábyrgðarsamningurinn nú er annar ábyrgðarsamningurinn sem Arion banki og EIF gera. Sá fyrri var gerður árið 2016 og var hluti af InnovFin ábyrgðum til smárra og meðalstórra fyrirtækja. Áhersla var á stuðning við nýsköpun lítilla fyrirtækja í formi lánveitinga sem námu alls rúmlega 16 milljörðum króna.
Meðfylgjandi er mynd frá undirrituninni en það voru þau (frá vinstri til hægri) Marjut Falkstedt, forstjóri EIF, Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Clara Ganslandt, sendiherra ESB á Íslandi, sem undirrituðu samkomulagið í Arion banka.
Evrópski fjárfestingasjóðurinn (EIF) er hluti af Evrópsku fjárfestingarbankasamstæðunni. Meginhlutverk sjóðsins er að styðja smá og meðalstór fyrirtæki með því að hjálpa þeim að afla fjármagns. EIF leggur áherslu á að þróa leiðir til að styðja við vöxt og áhættusamar fjárfestingar þessara fyrirtækja í gegnum fjármögnun og ábyrgðir. EIF styður við markmið Evrópusambandsins í þágu nýsköpunar, rannsókna og þróunar, frumkvöðlastarfsemi, vaxtar og atvinnu. Allt frá sínu fyrsta verkefni, sem var árið 1974 í Noregi, hefur Evrópska fjárfestingarbankasamstæðan lagt til yfir 6 milljarða evra til stuðnings verkefna á EFTA svæðinu; 5 milljarða í gegnum Evrópska fjárfestingarbankann (EIB) og um 1,1 milljarð evra í gegnum EIF. Þar af hefur samstæðan lagt til um 1,2 milljarða evra, eða um 184 milljarða króna, til verkefna á Íslandi í gegnum fjármögnun frá EIB og EIF.
InvestEU áætlunin leggur Evrópusambandinu til mikilvæga langtímafjármögnun með það að markmiði að styðja við sjálfbærni efnahagslífs og nýtir til þess umsvifamikla sjóði sem ýmist eru í opinberri eigu eða einkaeigu. Áætlunin stuðlar að aukinni fjárfestingu í samræmi við stefnuáherslur Evrópusambandsins eins og Græna samkomulag Evrópu, stafvæðingu og stuðning við smá og meðalstór fyrirtæki. Allir gerðir fjármálagjörninga sem Evrópusambandið býður upp á eru í boði undir einum og sama hattinum hjá InvestEU, sem einfaldar verkefnafjármögnun innan Evrópu; gerir hana skilvirkari og sveigjanlegri. InvestEU áætlunin samanstendur af þremur meginstoðum: InvestEU-sjóðnum, Evrópusetri fyrir fjárfestingarráðgjöf og Evrópugátt fyrir fjárfestingarverkefni. InvestEU-sjóðurinn reiðir sig á samstarfsaðila á sviði fjármála sem fjárfesta í verkefnum með því að nýta hluta af 26,2 milljarða evra ábyrgðarheimild Evrópusambandsins. Ábyrgðin auðveldar þeim að taka áhættu í sínum fjárfestingum og eykur fjárfestingargetu um að minnsta kosti 372 milljarða evra.
Evrópski fjárfestingasjóðurinn (EIF) og Arion banki hafa undirritað ábyrgðarsamning með það að...
LESA NÁNARÞann 23. ágúst sl. fengu Arion banki, Vörður og Stefnir endurnýjaða viðurkenningu fyrir góða...
LESA NÁNARArion banki hefur gefið út sjálfbæra fjármálaumgjörð. Hún tekur til fjármögnunar bankans, innlána og...
LESA NÁNARÞessi misserin gengur yfir okkur flóðbylgja nýrra laga og reglna um sjálfbærni fyrirtækja sem eiga...
LESA NÁNARMeð stóraukinni upplýsingagjöf á sviði sjálfbærni mun vægi sjálfbærninnar í viðskiptalífinu aukast...
LESA NÁNARArion banki hefur gefið út Áhrifa- og úthlutunarskýrslu fyrir græna fjármögnun bankans árið 2023. Í...
LESA NÁNARÍ dag, 8. mars, er haldið upp á alþjóðlegan baráttudag kvenna úti um heim allan. Þetta er tækifæri...
LESA NÁNARArion banki hefur gefið út árs- og sjálfbærniskýrslu og áhættuskýrslu fyrir árið 2023. Skýrslurnar...
LESA NÁNARNýverið fékk Arion banki uppfærðar niðurstöðu úr UFS-áhættumati alþjóðlega matsfyrirtækisins...
LESA NÁNARNýrri fræðsluröð á vegum Arion banka var ýtt úr vör miðvikudagskvöldið 17. janúar síðastliðinn með...
LESA NÁNARArion banki hefur skuldbundið sig til að fylgja aðferðafræði Science Based Targets initiative (SBTi)...
LESA NÁNARArion banki hlaut framúrskarandi einkunn í UFS áhættumati Reitunar og er í flokki A3. Matið byggir á...
LESA NÁNARBankastjóri Arion banka, Benedikt Gíslason, skrifaði nýverið undir yfirlýsingu tæplega 80 forstjóra...
LESA NÁNARArion banki hefur undirritað samkomulag um að vera einn af íslenskum bakhjörlum Heimsþings...
LESA NÁNARKonur eru um 60% starfsfólks Arion banka og munu margar þeirra leggja niður störf á morgun...
LESA NÁNARArion banki hefur um árabil verið aðili að Festu – miðstöð um sjálfbærni og er í hópi þeirra...
LESA NÁNARÞann 22. ágúst fengu Arion banki, Vörður og Stefnir endurnýjaða viðurkenningu fyrir góða...
LESA NÁNARNýverið samþykkti skipulagsnefnd Mosfellsbæjar að heimila skipulagsfulltrúa bæjarins að hefja...
LESA NÁNARArion banki hefur í annað sinn gefið út áhrifa- og úthlutunarskýrslu í tengslum við græna...
LESA NÁNARArion banki og Stefnir styrktu nýverið Yrkju – sjóð æskunnar til ræktunar landsins um samtals fjórar...
LESA NÁNARNýlega gerði Arion banki samning við bandaríska félagið Aspiration um kaup á vottuðum...
LESA NÁNARArion banki hefur gefið út árs- og sjálfbærniskýrslu og áhættuskýrslu fyrir árið 2022. Skýrslurnar...
LESA NÁNARNýverið undirrituðu íslenska sprotafyrirtækið SoGreen og Arion banki samstarfssamning í tengslum við...
LESA NÁNARArion banki hlýtur einkunnina „framúrskarandi“ í UFS áhættumati Reitunar, fær 90 stig af 100...
LESA NÁNAREitt af sjálfbærnimarkmiðum Arion banka árið 2022 var að meta umfang fjármagnaðrar kolefnislosunar...
LESA NÁNARÁ morgun, þriðjudaginn 29. nóvember, kl. 8.30-10.00 verður haldinn fundur á vegum Staðlaráðs...
LESA NÁNARArion banki og Vörður afhentu Krabbameinsfélaginu samtals 2,2 milljónir króna sem eru bæði styrkur...
LESA NÁNARArion banki, Vörður og Stefnir fengu nýverið endurnýjaða viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í...
LESA NÁNARNýverið fékk Arion banki niðurstöðu úr UFS-áhættumati alþjóðlega matsfyrirtækisins Sustainalytics...
LESA NÁNARFyrirtækið HAF vítamín, sem er í eigu sex nemenda við Menntaskólann við Sund, var valið fyrirtæki...
LESA NÁNARViðskiptavinir Arion banka og Arion banki gáfu fyrr í vikunni rúmar tíu milljónir króna til verkefna...
LESA NÁNARArion banki hefur gefið út árs- og sjálfbærniskýrslu, áhættuskýrslu og áhrifa- og úthlutunarskýrslu...
LESA NÁNARÞann 16. desember síðastliðinn lauk Arion banki útboði á nýjum grænum skuldabréfaflokki, ARION 26...
LESA NÁNARÁrið 2020 kynnti Arion banki til leiks, fyrstur íslenskra banka, grænan innlánsreikning sem ber...
LESA NÁNARStefnir – Scandinavian Fund ESG hefur hlotið AAA-einkunn MSCI, þá hæstu sem veitt er og er hann...
LESA NÁNARArion banki hlýtur framúrskarandi einkunn í UFS áhættumati Reitunar. Bankinn er með hæstu einkunn...
LESA NÁNARArion banki gerðist nýverið aðili að Partnership for Carbon Accounting Financials (PCAF). Um er að...
LESA NÁNARArion banki og Vörður fengu í gær viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar, hreyfiaflsverkefnis FKA.
LESA NÁNARArion banki hefur um árabil lagt ríka áherslu á jafnrétti í starfsemi sinni. Á undanförnum árum...
LESA NÁNARSíðastliðinn föstudag fengu Arion banki, Vörður og Stefnir viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og...
LESA NÁNARArion banki gaf í dag út græn skuldabréf til fjögurra ára að upphæð 300 milljónir evra eða sem nemur...
LESA NÁNARArion banki hefur gefið út heildstæða græna fjármálaumgjörð sem tekur til fjármögnunar bankans og...
LESA NÁNARÍ umhverfis- og loftslagsstefnu Arion banka kemur fram að bankinn geri þá kröfu til birgja að þeir...
LESA NÁNARÁrið 2020 kynnti Arion banki til leiks, fyrstur íslenskra banka, grænan innlánsreikning sem ber...
LESA NÁNARHeildarlosun gróðurhúsalofttegunda í rekstri Arion banka, þ.e. vegna bifreiða og húsnæðis bankans...
LESA NÁNARArion banki hefur gefið út árs- og samfélagsskýrslu og áhættuskýrslu fyrir árið 2020. Skýrslurnar...
LESA NÁNARGrænn vöxtur er innlánsreikningur Arion banka sem er hugsaður fyrir einstaklinga, félagasamtök og...
LESA NÁNARÁ dögunum undirrituðu Arion banki og Íþróttasamband fatlaðra áframhaldandi styrktarsamning til næstu...
LESA NÁNARForsetalisti Háskólans í Reykjavík verður kostaður af Arion banka næstu þrjú árin samkvæmt...
LESA NÁNARÍ síðustu viku undirrituðu HSÍ og Arion banki samkomulag um áframhaldandi samstarf þeirra á milli í...
LESA NÁNARArion banki og dótturfélögin Vörður og Valitor fengu í gær viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar...
LESA NÁNARBenedikt Gíslason, bankastjóri, undirritaði nýlega viljayfirlýsingu um Jafnvægisvogina þar sem fram...
LESA NÁNARSíðastliðinn föstudag birtist viðtal í Fréttablaðinu við Iðu Brá Benediktsdóttur, framkvæmdastjóra...
LESA NÁNARArion banki hlýtur framúrskarandi einkunn í UFS áhættumati Reitunar með 86 stig af 100 mögulegum og...
LESA NÁNARArion banki, Fjártækniklasinn, Landlæknir og Nýsköpunarvikan tóku höndum saman og stóðu fyrir...
LESA NÁNARÍ dag undirritaði Arion banki, ásamt dótturfélögunum Stefni og Verði og fjölda annarra fyrirtækja á...
LESA NÁNARArion banki og dótturfélögin Stefnir og Vörður voru á föstudag meðal þeirra 17 fyrirtækja sem fengu...
LESA NÁNARViðskiptavinum Arion banka býðst nú að leggja sparnað sinn inn á vistvænan innlánsreikning sem...
LESA NÁNARKrafa um að fjárfestar hugi að fleiri atriðum en eingöngu hefðbundnum fjárhagslegum þáttum í...
LESA NÁNARÍ september 2019 gerðist Arion banki einn af stofnaðilum samstarfsvettvangs atvinnulífs og...
LESA NÁNARSnædís Ögn Flosadóttir, rekstrarstjóri Lífeyrisauka tók þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnu...
LESA NÁNARArion banki er aðili að nýjum reglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrga bankastarfsemi sem styður við...
LESA NÁNARLagabreytingar og aukin vitundarvakning um málefni samfélags- og umhverfisábyrgðar fyrirtækja hefur...
LESA NÁNARHjá mörgum ríkir um það þegjandi en skýrt samkomulag að þátttaka í fjárfestingum sem augljóslega eru...
LESA NÁNARArion banka hefur sett sér stefnu í umhverfis- og loftslagsmálum. Í stefnunni kemur meðal annars...
LESA NÁNARÍ lok september undirritaði Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, nýjar meginreglur um ábyrga...
LESA NÁNARVið notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur og hvernig þú getur stjórnað þeim með því að smella á "Stillingar fótspora".