Stjórnarkjör 2023

Click here for information in English about the voting for the Board of EFÍA.

Stjórn EFÍA er skipuð fimm aðalmönnum og fimm varamönnum. Samkvæmt grein 4.1. í samþykktum sjóðsins skulu sjóðfélagar nú kjósa um tvo aðalmenn og einn varamann til stjórnarsetu í tvö ár.

Að auki eiga svo sæti í stjórninni einn aðalmaður og tveir varamenn sem kjörnir voru 2022 til tveggja ára og tveir aðalmenn og tveir varamenn sem Icelandair tilnefnir til eins árs.

Auglýst var eftir framboðum til stjórnar þann 4. apríl 2023 og lauk framboðsfresti þann 18. apríl 2023. Upplýsingar um frambjóðendur eru birtar hér að neðan ásamt upplýsingum um alla þegar kjörna og tilnefnda stjórnarmenn.

Framboð

Framboð til aðalmanns til tveggja ára:

Sturla Ómarsson

Kjartan Jónsson

Framboð til varamanns til tveggja ára: 

Ingvar Mar Jónsson

Davíð Smári Jóhannsson

 

Tilnefningar og þegar kjörnir

Aðalmaður til tveggja ára kjörinn 2022:

Salvör Egilsdóttir

Varamenn til tveggja ára kjörnir 2022:

Úlfar Henningsson
Arna Óskarsdóttir 

Aðalmenn til eins árs tilnefndir af Icelandair 2023:

Sigrún Hjartardóttir
Magnús Jón Magnússon

Varamenn til eins árs tilnefndir af Icelandair 2023:

Ari Guðjónsson
Íris Hulda Þórisdóttir 

Upplýsingar um framkvæmd kosninga

Kosningar verða með rafrænum hætti, kosningavef verður stillt upp á heimasíðu sjóðsins og auðkenna sjóðfélagar sig inn í kjörklefann með rafrænum skilríkjum eða íslykli.

  • Opnað verður fyrir kosningu kl. 13:00 þriðjudaginn 9. maí 2023
  • Kosning stendur til kl. 13:00 þriðjudaginn 16. maí 2023
  • Falli atkvæði jafnt verður varpað hlutkesti um stjórnarsætið að hlutaðeigandi frambjóðendum viðstöddum
  • Tilkynnt verður um niðurstöðu kosninga á heimasíðu sjóðsins

Framboð til aðalstjórnar eru jafn mörg þeim sætum sem kjósa skal um svo sjálfkjörið er til aðalstjórnar. Á kjörseðli verða því nöfn tveggja frambjóðenda til varamanns. Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal kjósa í öll sæti sem í boði eru og þurfa gildir kjörseðlar því að innihalda kosningu í eitt sæti varamanns.

EFÍA ber að tryggja það að fylgt sé 29. gr. laga nr. 129/1997 um samsetningu stjórnar, það felur í sér að tryggja skal að hlutfalls hvors kynsins sé ekki lægra en 40%. Sama gildir um kynjahlutföll meðal varamanna.