Bílalán
Viðskiptavinir greiða engin lántökugjöld af lánum vegna rafmagnsbíla og annarra bíla sem ganga fyrir 100% endurnýjanlegum orkugjöfum.

Bílafjármögnun
Viðskiptavinir greiða engin lántökugjöld við fjármögnun bíla sem ganga eingöngu fyrir rafmagni eða öðrum 100% endurnýjanlegum orkugjöfum.
Við fjármögnun annarra vistvænna bíla sem nota að hluta til endurnýjanlega orkugjafa og að hluta til jarðefnaeldsneyti sem eru með minni útblástur en 99 g/km í vegið CO2 gildi bjóðum við helmingsafslátt af lántökugjöldum.
Forsendur bílaláns
- Hámarksaldur láns 7 ár
- Samanlagður aldur bíls og lánstími má ekki vera meiri en 10 ár
- Ef fjárhæð láns fer yfir 2.200.000 fyrir einstakling (4.400.000 fyrir sambúðarfólk) þarf lántaki að fara í greiðslumat
- Lán getur verið allt að 80% af verði bíls
- Lágmarkskaupverð bíls er kr. 1.000.000
- Ökutækið má ekki vera ekið meira en 170.000 km.
Hjólhýsi og aðrir ferðavagnar
Arion banki fjármagnar allt að 80% af kaupverði ferðavagns og gilda um það sömu reglur og varða bílalán/bílasamninga.

Hvernig fæ ég bílafjármögnun?
Þegar þú hefur fundið rétta bílinn mun söluaðilinn senda inn umsókn um fjármögnun. Umsóknin er send inn í rafrænt og er samþykktin sjálfvirk. 100% pappírslaust ferli fyrir bílasaminga, þar sem undirritað er með rafrænum skilríkjum. Ef þörf er á greiðslumati vegna umsóknarinnar er það byggt í kerfið og lokið á aðeins 3 mínútum gjaldfrjálst. Ef þú hefur frekari spurningar er hægt að hafa samband við ráðgjafa í síma 444-8800 eða með tölvupósti á netfangið bilar@arionbanki.is.
Bílasamningur eða bílalán?
Bílasamningar eru afgreiddir í 100% rafrænu ferli, sem er fljótvirkt og eykur sveigjanleika yfir samningstímann. Viðskiptavinurinn er skráður skattalegur eigandi og umráðamaður bílsins og er skráning bílsins flutt yfir á viðskiptavin við uppgreiðslu samnings. Þá er lítið mál að greiða inná samninginn eða greiða hann upp að fullu í netbankanum, hvenær sem er yfir samningstímann, án auka kostnaðar.
Bílalán eru veðskuldabréf sem er þinglýst hjá sýslumanni. Það er því ekki hægt að afgreiða nema að hluta í rafrænu ferli, og þýðir að allar breytingar á lánstíma þurfa að fara í þinglýsingu. Viðskiptavinur er skráður eigandi bílsins, en bankinn á fyrsta veðrétt. En líkt og með samning er hægt að greiða lánið upp að hluta eða heild hvenær sem er yfir lánstímann án auka kostnaðar. Við uppgreiðslu er veðinu aflétt hjá sýslumanni.
Bílatryggingar
Miklir fjármunir liggja í ökutækjum og geta hin minnstu tjón verið mjög kostnaðarsöm. Vörður býður viðskiptavinum víðtækar tryggingar fyrir ökutæki.
Það gæti borgað sig að fá tilboð í tryggingar frá Verði fyrir nýja bílinn. Smelltu hér.

Reikna lán
Sérfræðingar bílafjármögnunar
Sérfræðingar okkar búa yfir áralangri reynslu og eru ávallt tilbúnir að aðstoða og finna bestu fjármögnunarleiðina fyrir þig og þitt félag.
Ef þú hefur einhverjar spurningar er hægt að hafa samband við okkur í síma 444-8800 eða með því að senda okkur tölvupóst á netfangið bilar@arionbanki.is.
Spurt og svarað
Bílasamningur eða bílalán?
Hvernig fæ ég bílafjármögnun?
Þarf tækið að vera tryggt?
Hvernig greiði ég inn á bílalánið/ bílasamninginn?
Hvar get ég séð stöðu á virkum samningi?
Eru vextir fastir eða breytilegir?
Greiði ég jafnar greiðslur eða jafnar afborganir?
Er mögulegt að greiða upp virkan samning?
Hversu hátt hlutfall af kaupverði fæst fjármagnað?
Get ég farið með ökutæki úr landi?
Hver er munurinn á bílasamningi og bílaláni ?