Vöxtur - langtímasparnaður

Þessi reikningur eru ekki í birtingu. Upplýsingar á þessari síðu gæti verið úreltar.

Bundinn óverðtryggður reikningur með góða vexti til 12, 18 eða 24 mánaða. Reikningurinn hentar vel fyrir reglulegan sparnað. 1,5% úttektargjald reiknast á útborgun sem framkvæmd er áður en binditíma lýkur .

Ef reikningurinn er í reglulegum sparnaði er hægt að taka út alla fjárhæðina í einu að samningstíma loknum. Fyrsta innlegg eftir losun ákvarðar nýja bindingu út samningstíma. Til að virkja reglulegan sparnað á reikningi þá getur þú sent beiðni þess efnis á arionbanki@arionbanki.is eða færð aðstoð í næsta útibúi.

Eiginleikar:
  • Óverðtryggður innlánsreikningur
  • Vextir eru breytilegir og fylgja vaxtatöflu bankans
  • Hægt er að gera samning um reglulegan sparnað og er þá öll innstæðan laus til útborgunar eftir 12, 18 eða 24 mánuði
  • Óreglulegar innborganir eru bundnar eins og binditími reiknings segir til um þ.e.a.s bundið í 12, 18 eða 24 mánuði
  • Vextir eru bókaðir á reikninginn í árslok og eru þeir eru lausir til útborgunar eftir það
  • Tilvalinn til að spara fyrir öllu þessu skemmtilega
  • Lágmarksmillifærsla í reglulegum sparnaði 500 kr.
  • Engin lágmarksinnstæða

Binditími

BindingVextir
12 mánuðir3,80%
18 mánuðir4,05%
24 mánuðir4,50%