Platinum Vildarviðskiptakort

Ferðatryggingar
Vildarpunktar per 1000 kr.8 punktar af innlendri verslun
Árgjald24.700 kr.
Árgjald aukakortsAukakort ekki í boði
Fæst fyrirframgreitt Nei
Borga með símanum
Tryggingarskilmálar Varðar

Kort fyrir stjórnendur sem ferðast á vegum fyrirtækisins og þarfnast öflugra ferðatrygginga. 

  • Árlegt tengigjald til Icelandair 1.500 kr. og korthafi fær 2.500 Vildarpunkta.
  • Safnar 8 Vildarpunktum Icelandair fyrir hverjar 1.000 kr. af innlendri verslun kortsins.
  • Korthafar geta óskað eftir að fá stafrænan Priority Pass aðgang sem veitir aðgengi að yfir 1300 betri stofum á flugvöllum í yfir 600 borgum víða um heim. Greitt er fyrir inngöngu að betri stofunum hverju sinni og geta handhafar Priority Pass boðið gesti með sér gegn gjaldi, sjá verðskrá. Priority Pass gildir ekki á Saga Lounge í Keflavík. Nánari upplýsingar um Priority Pass má finna hér.
  • Aðgangur að Visa Bidroom þar sem korthöfum býðst að bóka hótel víða um heim. Á Visa Bidroom bjóðast oft góð kjör, t.d. í formi uppfærslu, auka fríðinda eða þjónustu. Sláðu inn kortanúmerið þitt á heimasíðu Bidroom og stofnaðu aðgang.*
  • Skráðu þig í Saga Club Icelandair til að fá upplýsingar um punktastöðu og ferðatilboð.
  • Sjá notkunarmöguleika Vildarpunkta Icelandair hér.
Veltutengdur afsláttur af árgjaldi korts:
  • 50% afsláttur af árgjaldi ef ársvelta er yfir 4.000.000 kr.
  • 100% afsláttur af árgjaldi ef ársvelta er yfir 7.600.000 kr.

* Ekkert er gjaldfært af kortinu, aðeins verið að kanna hvort kortið þitt uppfylli skilyrði fyrir fríðindum. Aðeins er hægt að slá hvert kortanúmer inn einu sinni.

Ferðatryggingar - hámarksbætur

Dánarbætur v/ slyss12.000.000 kr.
Örorkubætur v/ slyss12.000.000 kr.
Sjúkratrygging16.000.000 kr.*
Ferðarof300.000 kr.
Samfylgd í neyð300.000 kr.
Endurgreiðsla ferðar440.000 kr.
Sjúkrahússdagpeningar144.000 kr.
Farangurstrygging400.000 kr.*
Innkaupatrygging400.000 kr.*
Farangurstöf40.000 kr.
Ferðatöf24.000 kr.
Tafir á leið að flugvelli-
Tafir vegna yfirbókunar-
Innkaupakaskó-
Mannránstrygging720.000 kr.
Forfallatrygging350.000 kr.*
Ábyrgðartrygging40.000.000 kr.*
Kaskótrygging vegna bílaleigubílsUSD 50.000**
Viðbótarábyrgðartrygging vegna bílaleigubílsUSD 1.000.000
Gildir í allt að90 daga
Birt með fyrirvara um innsláttarvillur.

Ofangreindar tryggingar gilda á ferðalögum erlendis í allt að 90 daga þó að fargjaldið sé ekki greitt með kortinu.

* Sjálfsábyrgð 15.000 kr., sjá nánar í tryggingaskilmálum
** Sjálfsábyrgð 25.000 kr., sjá nánar í tryggingaskilmálum

Sækja um Platinum Vildarviðskiptakort