Lánavernd - Lán - Einstaklingar - Arion banki

Lánavernd

  • Eflir fjárhagslegt öryggi við áföll
  • Tryggir greiðslur afborgana og vaxta
  • Skerðir ekki rétt til vaxtabóta
  • Bætur eru skattfrjálsar
  • Dregur úr fjárhagsáhyggjum

Lánavernd er hagstæður kostur fyrir þá sem eru með eða taka Íbúðalán. Lánaverndin eflir fjárhagslegt öryggi við áföll eins og alvarlegan sjúkdóm eða andlát samkvæmt skilmálum Lánaverndar.

Alvarleg áföll gera sjaldnast boð á undan sér og þeir sem fyrir þeim verða eru oft illa í stakk búnir til að kljást við fjárhagsskuldbindingar eins og afborganir af íbúðarhúsnæði. Lánavernd tryggir greiðslur afborgana og vaxta Íbúðaláns við andlát eða alvarlegan sjúkdóm.

Sækja um Lánavernd Spurt og svarað

Lánavernd – sjálfsögð fyrirhyggja

Sjálfsagt er að sýna fyrirhyggju og tryggja sér Lánavernd enda er um mjög hagstæða vernd að ræða sem getur létt fjárhagsáhyggjur verulega á erfiðum tímum. Helstu kostir Lánaverndar felast í eftirfarandi:

  • Arion banki greiðir af íbúðaláninu við alvarlegan sjúkdóm eða andlát samkvæmt skilmálum
  • Skerðir ekki rétt til vaxtabóta
  • Arion banki greiðir af láninu vegna alvarlegs sjúkdóms barna vátryggðs samkvæmt skilmálum
  • Bætur úr Lánavernd eru skattfrjálsar
  • Greiðsla fyrir Lánavernd er innheimt með afborgunum af Íbúðaláni
  • Dregur úr fjárhagsáhyggjum á erfiðum tímum

Dæmi um mánaðariðgjald af  Lánavernd m.v. 10 milljóna kr. Íbúðalán til 40 ára og að Lánavernd taki yfir greiðslur af Íbúðaláni í u.þ.b. þrjú ár, vátryggingarfjárhæð kr. 1.717.216 *

Aldur Karl Kona
25 ára 425 kr. 350 kr.
35 ára 594 kr. 576 kr.
45 ára 1.320 kr. 1.181 kr.

Lánavernd er unnin í samstarfi við OKKAR sem er dótturfélag Arion banka.

* Miðað er við reyklausan einstakling.