05.05.2026

Arion banki og Vörður opna úti­bú í Reykja­nes­bæ

Þann 5. maí 2026 opna Arion banki og Vörður nýtt útibú í Reykjanesbæ. Núverandi starfsemi Varðar í Krossmóa flyst í sameiginlegt húsnæði með Arion banka sem stendur við Aðalgötu 64. Aðgengi við Aðaltorg er einstaklega gott beint frá Reykjanesbraut og næg bílastæði verða fyrir utan útibúið.

Um er að ræða svokallað kjarnaútibú þar sem verður að finna fjölbreytta fjármála- og tryggingaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Útibúið er staðsett í þjónustukjarna á fyrstu hæð og starfa þar ellefu manns til að byrja með. Opnunartími er frá 9:00-16:00. Fólk á leið til útlanda getur keypt gjaldeyri hjá gjaldkera á opnunartíma útibúsins og eins verður þar gjaldeyrishraðbanki sem er opinn allan sólarhringinn. Svæðisstjóri er Einar Hannesson. Allt starfsfólk útibúsins er búsett á svæðinu og þekkir því vel til samfélagsins.

Einar Hannesson, svæðisstjóri einstaklinga í Reykjanesbæ:

„Opnunin markar viss tímamót hjá Arion banka því að við höfum ekki opnað nýtt útibú í langan tíma, svo að þetta er virkilega spennandi verkefni. Þá á Vörður sér langa sögu í Reykjanesbæ, enda höfum við verið með útibú í þessu öfluga sveitarfélagi síðan 1999. Við ætlum að láta fjármál og tryggingar vinna saman og styðja við uppbyggingu og kröftugt atvinnulíf. Hér er mikil gróska og með auknum umsvifum Arion opnast ennþá fleiri tækifæri.

Við hlökkum til að taka á móti fólkinu á svæðinu, drekka með því kaffi og eiga góð samtöl um fjármál og tryggingar. Sjáumst á Aðaltorgi.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira