03.11.2026

Arion banki ráð­gjafi við sölu Fjarðar­kaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Fjarðarkaup var stofnað árið 1973 og hefur frá upphafi verið í eigu og rekstri sömu fjölskyldu. Á meira en fimm áratuga starfsferli hefur fyrirtækið byggt upp sterka stöðu á íslenskum dagvörumarkaði og laðað að sér tryggan hóp viðskiptavina, sér í lagi á meðal íbúa Hafnarfjarðar. Fjarðarkaup hefur ætíð lagt áherslu á góða þjónustu, fjölbreytt vöruúrval og hagstætt verð, sem hefur verið grundvöllur velgengni fyrirtækisins. 

Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.  

Við óskum eigendum Fjarðarkaupa til hamingju með farsæl tímamót eftir rúmlega hálfrar aldar rekstur og þökkum þeim, sem og öllum hlutaðeigandi aðilum, fyrir ánægjulegt samstarf. 

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka og LOGOS voru ráðgjafar seljenda í söluferlinu.  

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira