13.11.2026
Truflun á tölvupóstþjónustu
Vegna tæknilegra truflana í þjónustu sem við nýtum hjá Microsoft eigum við í tímabundnum vandræðum með tölvupóstþjónustuna okkar. Truflanirnar kunna einnig að hafa áhrif á aðra þjónustu og kerfi.
Áhrifin á tölvupóstþjónustuna felast meðal annars í því að ekki er tryggt að allir tölvupóstar berist til okkar eða skili sér frá okkur til viðtakenda.
Við fylgjumst grannt með stöðunni og vinnum að því að lágmarka áhrif truflananna. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Að öðru leyti gengur þjónusta okkar með eðlilegum hætti í útibúum, appi og netbanka. Einnig er hægt að hafa samband við þjónustuver okkar í síma 444 7000.
Varðandi viðskipti með stök hlutabréf og sjóði þá er hægt að eiga slík viðskipti í netbanka og appi eða hringja í Verðbréfamiðlun okkar í síma 444-6350.