07.10.2025

Arion banki gef­ur út skýrslu um horf­urnar í ís­lensk­um sjáv­ar­út­vegi

Arion banki hefur gefur út ítarlega skýrslu um stöðuna í íslenskum sjávarútvegi.

Sjávarútvegur hefur verið samofinn sögu Íslands frá landnámi og staðið af sér margs konar áföll, aðlagast breyttri samfélagsgerð og lengi haldið stöðu sinni sem hryggjarstykkið í íslensku hagkerfi.

Í skýrslunni vörpum við ljósi á það hvernig kvótakerfið hefur skapað þá umgörð sem gerði hérlendum sjávarútvegsfyrirtækjum kleift að komast í fararbrodd á heimsvísu. Nú á dögum erum við í sterkri stöðu hvað varðar ferskleika og gæði afurða, skilvirkni og tækni í veiðum og vinnslu, nýtingu afurða og sjálfbærni.

Við skoðum enn fremur núverandi rekstrarskilyrði í greininni og veltum fyrir okkur áhrifum nýs fiskveiðigjalds. Þá köfum við ofan í hraðan vöxt fiskeldis á síðustu árum og stórtækar áætlanir á því sviði.

Ef framtíðin rímar við fortíðina eru allar líkur á því að íslenskum fyrirtækjum takist að finna leiðir til þess að halda íslenskum sjávarútvegi áfram í fremstu röð. Sem stendur er mikil gróska í greininni hér á landi, einkum hjá nýsköpunarfyrirtækjum. Ekki má þó líta fram hjá þeim áskorunum sem fram undan eru, meðal annars í tengslum við breytt loftslagsskilyrði og hlýnun sjávar, flókin rekstrarskilyrði fiskvinnslna og fleira.

Íslenskur sjávarútvegur í heimsklassa

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira