21.10.2026

Arion banki birt­ir upp­gjör þriðja árs­fjórð­ungs 2026 mið­viku­dag­inn 28. októ­ber. Fjárfesta­fund­ur verður hald­inn fimmtu­dag­inn 29. októ­ber.

Arion banki birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2026 miðvikudaginn 28. október, eftir lokun markaða.

Fundur/ vefstreymi fyrir markaðsaðila 29. október kl. 8:30
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 29. október klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka mun fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.

Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu.

Spurningum verður svarað að loknum kynningum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri tilkynningar

Allar tilkynningar
30. október 2026

Arion banki: Einkaviðræður um kaup sérhæfðs sjóðs í stýringu Íslenskra verðbréfa hf. á Blikastaðalandi ehf.

Arion banki hf. hefur ákveðið að ganga til einkaviðræðna við Íslensk verðbréf hf. fyrir hönd óstofnaðs sérhæfðs sjóðs um kaup sjóðsins á öllu hlutafé dótturfélags bankans, Landeyjar ehf., í Blikastaðalandi ehf. sem á og þróar Blikastaðaland í Mosfellsbæ. Það kaupverð sem er til umræðu í viðskiptunum rúmast innan þeirra 14 til 16 milljarða króna marka sem kynnt voru í kauphallartilkynningu bankans 25. september síðastliðinn.
Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.
Lesa meira
27. október 2026

Arion banki gerir sátt við fjármálaeftirlitið

Arion banki hefur gert sátt við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Sáttin er gerð í kjölfar athugunar eftirlitsins sem hófst í apríl 2024 og laut að fylgni bankans við lög um aðgerðir gegn markaðssvikum og lög um markaði fyrir fjármálagerninga. Með sáttinni gengst bankinn við annmörkum á verklagi og fellst á greiðslu sektar að fjárhæð 280 milljónir króna. Jafnframt skuldbindur bankinn sig til að ráðast í viðeigandi úrbætur sem þegar eru langt komnar.
Lesa meira