18.09.2026

10.000 kon­ur mætt á við­burði Kon­ur fjár­festum

„Í rúm tvö ár höfum við hjá Arion unnið skipulega að stóru samfélagslegu verkefni sem nefnist Konur fjárfestum. Markmiðið hefur verið skýrt: Að fjölga þeim konum sem taka þátt í fjárfestingum, efla þekkingu kvenna á fjármálum með áhugaverðri fræðslu og styðja konur í því að ná fjárhagslegu sjálfstæði.“ 

Svo hefst grein sem Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri Arion banka, birti á Vísi þann 16. september síðastliðinn. Í greininni horfir Iða Brá í baksýnisspegilinn og fer yfir sögu Konur fjárfestum verkefnis Arion banka, sem staðið hefur yfir í rúm tvö ár. Á þeim tíma hafa rúmlega 10.000 konur sótt fræðslufundi átaksins og við sjáum helmingsfjölgun kvenna sem fjárfesta í sjóðum okkar.  

Við erum stolt af árangrinum sem náðst hefur og höldum ótrauð áfram veginn. Fyrstu tvö ár Konur fjárfestum okkar sýna að breytingar eru mögulegar. 

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
13. nóvember 2026

Truflun á tölvupóstþjónustu

Vegna tæknilegra truflana í þjónustu sem við nýtum hjá Microsoft eigum við í tímabundnum vandræðum með tölvupóstþjónustuna okkar. Truflanirnar kunna einnig að hafa áhrif á aðra þjónustu og kerfi.

Lesa meira
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira