10.04.2018

238 um­sóknir bár­ust í Startup Reykja­vik

Umsóknarfresti í Startup Reykjavik lauk þann 8. apríl sl. Að þessu sinni bárust 238 umsóknir sem er 70% fleiri en árið 2017. Tíu fyrirtæki verða valin til þátttöku en miðað er við að þau hafi verið valin ekki seinna en fyrstu vikuna í maí. Að þessu sinni verða því einungis 4% þeirra fyrirtækja sem sóttu um valin til þátttöku. Erlendar umsóknir hafa aldrei verið fleiri en en nú og er hlutfall innlendra og erlendra umsókna nú í fyrsta sinn nokkurn veginn jafnt.

Startup Reykjavik hefur fest sig í sessi sem einn besti vettvangurinn fyrir frumkvöðlafyrirtæki að móta sínar viðskiptahugmyndir betur á Íslandi. Frá upphafi hafa 60 fyrirtæki farið í gegnum viðskiptahraðalinn. Arion banki, í gegnum dótturfélagið Startup Reykjavik Invest ehf., fjárfestir 2,4 milljónum króna í hverju fyrirtæki gegn 6% eignarhlut. Startup Reykjavik fyrirtæki hafa í heildina fengið fjármögnun sem nemur um 2,8 milljörðum króna og er um 70% þess fjármagns hlutafé frá fjárfestum en um 30% styrkir.

Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður nýsköpunar hjá Arion banka:

„Áfram sýnir það sig hversu mikilvægt Startup Reykjavik er í frumkvöðla- og nýsköpunarumhverfinu. Úr hraðlinum hafa í gegnum tíðina komið einkar áhugaverð fyrirtæki sem hafa notið þess stuðnings sem þar er í boði. Við hlökkum til að vinna með þeim fyrirtækjum í sumar sem valin verða til þátttöku að þessu sinni.“

Edda Konráðsdóttir, verkefnastjóri Startup Reykjavik hjá Icelandic Startups:

„Það er einkar ánægjulegt að sjá áframhaldandi mikinn áhuga á Startup Reykjavik, bæði innanlands og utan. Það eykur trúverðugleika verkefnisins að erlendir frumkvöðlar sjá sér hag í því að sækja um þátttöku hér á landi. Gróskan í frumkvöðlaumhverfinu er mikil og spennandi verður að sjá hvernig fyrirtæki hafa sótt um í ár.“

Viðskiptahraðallinn Startup Reykjavik var stofnaður árið 2012 í samstarfi Arion banka og Icelandic Startups. Arion banki er eigandi Startup Reykjavik og fjármagnar verkefnið að fullu. Startup Reykjavik var valinn besti viðskiptahraðallinn á Norðurlöndunum árið 2015.

Fjöldi umsókna í Startup Reykjavik 2012-2018

Fjármögnun* Startup Reykjavik fyrirtækja eftir árgöngum í milljónum króna

*Fjármögnun miðast við þátttökuár fyrirtækjanna en ekki hvenær fjárfestingin sjálf var gerð.
Þannig er rökrétt að fjármögnun eldri árganga sé meiri en yngri árganga.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira