13.02.2019

Á þitt fyrir­tæki heima í Startup Reykja­vik – kynning­ar­fund­ur 21. fe­brú­ar

Startup Reykjavik hefur fyrir löngu sannað gildi sitt þegar kemur að víðtækum stuðningi við frumkvöðlafyrirtæki. Umsóknarfrestur í viðskiptahraðalinn fyrir starfsárið 2019 rennur út þann 27. mars næstkomandi. Á fundinum verður farið yfir fyrirkomulagið í Startup Reykjavik og stuðning á meðan hraðallinn stendur yfir og í kjölfar hans. Að auki verður fjallað um fjármögnun fyrirtækja og hvernig viðskiptahraðlar get stytt leiðina að fjármögnun.

Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka í Borgartúni 19, kl. 12-13. Boðið verður upp á léttar veitingar í hádeginu.

Dagskrá fundarins

Edda Konráðsdóttir – verkefnastjóri hjá Icelandic Startups

  • Fyrirkomulag Startup Reykjavik

  • Af hverju að sækja um?

  • Eftir hvernig fyrirtækjum er leitað?

Einar G. Guðmundsson – Arion banka og framkvæmdastjóri Startup Reykjavik Invest ehf.

  • Árangur Startup Reykjavik fyrirtækja

  • Fjárfestingar í sprotafyrirtækjum

  • Fjármögnun sprotafyrirtækja

Haraldur Hugosson, COO - Genki instruments

Haraldur er COO hjá Genki instruments, sem er tæknifyrirtæki þar sem verkfræði, hönnun og tónlist renna saman í eitt. Genki instruments tók þátt í Startup Reykjavik 2015 en fyrirtækið hefur aflað fjár hjá englafjárfestum, staðið fyrir vel lukkaðri hópfjármögnunarherferð á Indiegogo og fengið styrki, í heildina um 75 milljónir. Haraldur mun deila fjármögnunarvegferð fyrirtækisins á fundinum.

Skráning á kynningarfundinn

Vefsíða Startup Reykjavík

Facebook síða Startup Reykjavík

Edda Konráðsdóttir

Einar G. Guðmundsson

Haraldur Hugosson

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira