12.04.2016

Aðal­heiður og Haf­dís ný­ir svæð­is­stjór­ar hjá Arion banka

Aðalheiður Guðgeirsdóttir hefur tekið við nýju starfi sem svæðisstjóri Arion banka á Keflavíkurflugvelli en þann 1. maí mun bankinn hefja þar starfsemi. Aðalheiður starfaði sem útibússtjóri í Kópavogi frá árinu 2010 til 2016 en var einnig svæðisstjóri í Kraganum þ.e. Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði frá árinu 2013.

Á árunum 2007-2010 var Aðalheiður útibússtjóri í Vesturbæjarútibúi bankans og á árunum þar á undan starfaði hún sem sérfræðingur á viðskiptabankasviði. Hún var framkvæmdastjóri framleiðslufyrirtækisins Kjötbankans á árunum 1999-2005. Aðalheiður er núverandi varamaður í stjórn Okkar lífs.

Aðalheiður hefur lokið viðskiptafræðimenntun, Cand.oecon gráðu, frá Háskóla Íslands.

Hafdís Hansdóttir tekur við starfi Aðalheiðar sem útibússtjóri Arion banka í Kópavogi og svæðisstjóri Kragans. Hafdís hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans síðastliðin sextán ár, þar af síðastliðin tvö ár sem sviðsstjóri þjónustukjarna Arion banka á viðskiptabankasviði. Á árunum 2009-2014 starfaði hún sem forstöðumaður þjónustuvers bankans og á árunum þar á undan sem aðstoðarútibússtjóri í Hafnarfjarðarútibúi.

Áður en Hafdís kom til starfa í bankanum vann hún að jafnréttis- og félagsmálum, meðal annars sem ráðgjafi hjá fjölskyldudeild Félagsþjónustunnar í Reykjavík.

Hafdís er með B.A. gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands og mastersgráðu í kynjafræði fá Lancaster University. Þá hefur hún lokið rekstrar- og viðskiptanámi frá Endurmenntun Háskóla Íslands og næsta vor mun hún ljúka námi í markþjálfun frá Háskólanum í Reykjavík.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira