18.05.2018

Að­sókn í viðskipta­hraðal­inn Startup Reykja­vik aldrei ver­ið meiri

Viðskiptahraðallinn Startup Reykjavík fer nú af stað í sjöunda sinn í samstarfi Arion banka og Icelandic Startups. Hraðallinn hefur fest sig í sessi sem eftirsóttur vettvangur fyrir sprotafyrirtæki sem vilja þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar og hraða vexti undir leiðsögn sérfræðinga. Lögð er áhersla á að ná til öflugra teyma með nýjar lausnir á sviði tækni og skapandi greinda, ætlaðar alþjóðamarkaði. Umsóknum í hraðalinn fjölgaði um 45% frá síðasta ári, en alls bárust 270 umsóknir í ár. Athygli vekur að umsóknir erlendis frá eru um helmingur umsókna.

Tíu teymi hafa verið valin til þátttöku í hraðlinum sem hefst þann 11. júní n.k. Þau eru afar fjölbreytt og komin vel af stað, flest eru nú þegar farin að afla tekna. Þrjú þeirra koma erlendis frá: Bretlandi, Svíþjóð og Spáni.

  1. Anymaker - Stafrænt stúdíó sem framleiðir þrívíddarhugbúnað ætlaðan börnum.

  2. Blockcycle - Kerfi sem nýtir Blockchain tæknina til að rekja feril umbúða frá afurð til endastöðvar.

  3. Ekki Banka - Einföld og snjöll lausn sem hjálpar einstaklingum að hagnýta eigin fjárhagsupplýsingar.

  4. Huginn.care - Skýjalausn, fyrir fyrirtæki og stofnanir, sem ætlað er að einfalda atvika- og dagbókaskráningar skjólstæðinga í umönnun.

  5. Koride - Deilibílalausn fyrir ævintýragjarna ferðamenn á Íslandi.

  6. Leiguskjól - Fjártæknifyrirtæki sem býr til nýjar lausnir fyrir leigumarkað.

  7. Melius - Hannar og framleiðir vélbúnað sem gerir snjallsímum kleift að fylgja því sjálfvirkt eftir sem tekið er upp á símanum.

  8. Sea Data Center - Tæknilausn sem byggir á einstökum gagnagrunni og ætlað er að auka virði viðskipta meðal fyrirtækja í sjávarútvegi.

  9. Taktikal - Hugbúnaðarlausn sem gerir einstaklingum og lögaðilum mögulegt að stofna til viðskipta á örfáum mínútum með sjálfvirknivæðingu á ýmsum viðskiptaferlum.

  10. Unify Me - Tæknilausn sem gerir fyrirtækjum kleift að eiga öll innri samskipti á einum stað.

Teymin tíu munu njóta ráðgjafar og leiðsagnar reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annarra sérfræðinga yfir tíu vikna tímabil í þeim tilgangi að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar, koma vöru á markað og hraða vexti. Arion banki fjárfestir jafnframt 2,4 m.kr. í hverju fyrirtæki gegn 6% eignahlut í gegnum dótturfélagið Startup Reykjavik Invest ehf. Frá upphafi hafa 60 fyrirtæki farið í gegnum viðskiptahraðalinn og eru 39 þeirra enn starfandi. Þau fyrirtæki sem tekið hafa þátt í Startup Reykjavik hafa í heildina fengið fjármögnun sem nemur um 2,8 milljörðum króna og er áhugavert að sjá að um 70% þess fjármagns er hlutafé frá fjárfestum.

Viðskiptahraðallinn Startup Reykjavik var stofnaður árið 2012 í samstarfi Arion banka og Icelandic Startups. Arion banki er eigandi Startup Reykjavik og fjármagnar verkefnið að fullu. Icelandic Startups sér um framkvæmd verkefnisins. Startup Reykjavik var valinn besti viðskiptahraðallinn á Norðurlöndunum árið 2015.

Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður nýsköpunar hjá Arion banka:

„Áfram sýnir það sig hversu mikilvægt Startup Reykjavik er í frumkvöðla- og nýsköpunarumhverfinu. Úr hraðlinum hafa í gegnum tíðina komið einkar áhugaverð fyrirtæki sem hafa notið þess stuðnings sem þar er í boði. Við hlökkum til að vinna með þeim fyrirtækjum í sumar sem valin hafa verið til þátttöku að þessu sinni.“

Edda Konráðsdóttir, verkefnastjóri hjá Icelandic Startups:

„Icelandic Startups hefur síðustu ár lagt aukna áherslu á að efla tengsl við alþjóðlegt sprotaumhverfi og því er ánægjulegt að sjá aukinn áhuga frumkvöðla erlendis frá á þátttöku í Startup Reykjavik. Við teljum það til marks um aukinn trúverðugleika á stuðningsumhverfinu hér heima. Gróskan í frumkvöðlaumhverfinu á Íslandi er mikil og spennandi verður að vinna með þessum flottu fyrirtækjum í sumar.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira