31.08.2016

Af­koma Arion banka á fyrri árs­helm­ingi 2016

Hagnaður Arion banka á fyrri helming ársins 2016 nam 9,8 milljörðum króna samanborið við 19,3 milljarða króna á sama tímabili 2015. Arðsemi eigin fjár var 9,5% samanborið við 22,8% fyrir sama tímabil árið 2015. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 2,8 milljörðum króna samanborið við 7,8 milljarða á fyrri helming ársins 2015. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi nam 2,8% samanborið við 9,8% á fyrri helming ársins 2015.

Heildareignir námu 1.035,0 milljörðum króna í lok júní samanborið við 1.011,0 milljarða króna í árslok 2015 og eigið fé hluthafa bankans nam 199,2 milljörðum króna í lok júní, samanborið við 192,8 milljarða króna í árslok 2015. Efnahagur bankans er sterkur og lögð hefur verið áhersla á trygga lausafjárstöðu í aðdraganda afnáms fjármagnshafta.

Eiginfjárhlutfall bankans í lok júní var 27,8% en var 24,2% í árslok 2015. Hlutfall eiginfjárþáttar A hækkaði og nam 26,8% samanborið við 23,4% í árslok 2015.

Helstu rekstrar- og kennitölur bankans eru eftirfarandi:

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka

„Afkoma bankans á fyrstu sex mánuðum ársins er undir væntingum. Grunnrekstur bankans gekk engu að síður ágætlega á tímabilinu en ytri aðstæður voru um margt óhagstæðar. Góður vöxtur var í útlánum, sérstaklega til fyrirtækja en lán bankans til fyrirtækja hafa aukist um 8% frá áramótum og hreinar vaxtatekjur aukast um 11%. Arion banki er vel búinn undir þær breytingar sem afnámi hafta fylgja, með traustan efnahag og sterka lausafjárstöðu.

Aðstæður á fjármálamörkuðum á tímabilinu voru bankanum óhagstæðar. Þannig eru fjármagnstekjur, aðrar en sala Valitor á hlutabréfum í Visa Europe, undir okkar væntingum og er bókfært umtalsvert tap af hlutabréfaeign bankans í skráðum félögum. Arion banki sá um allar nýskráninar í kauphöll á árinu 2015 en engar skráningar hafa átt sér stað á þessu ári og hefur það áhrif á þóknanatekjur bankans. Rekstrarkostnaður eykst og munar þar mest um hærri launakostnað, fyrst og fremst vegna kjarasamninga. Talsverð fjölgun starfsfólks í kjölfar aukinna umsvifa hefur þar einnig áhrif, ekki síst nýtt útibú Arion banka á Keflavíkurflugvelli sem var opnað í maí og er opið allan sólarhringinn, alla daga ársins. Þar teljum vera góð sóknarfæri. Starfsfólki fjölgar einnig í Valitor þar sem áfram er fjárfest í vexti á erlendum vettvangi.

Arion banki hefur verið leiðandi íslenskra banka á alþjóðlegum fjármálamörkuðum í nýrri fjármögnun. Í apríl gaf bankinn út öðru sinni skuldabréf í evrum til breiðs hóps fjárfesta á umtalsvert hagstæðari kjörum en fyrra skuldabréfið sem var gefið út fyrir um ári síðan. Þessar útgáfur hafa verið mjög vel heppnaðar og gengi þeirra á eftirmarkaði hefur sýnt að eftirspurn eftir útgáfu bankans er umtalsverð. Bankinn hefur sömuleiðis gefið út sértryggð skuldabréf og víxla á íslenska markaðnum sem hefur verið vel tekið.“

Fundur með markaðsaðilum

Arion banki mun halda símafund á ensku fyrir markaðsaðila, fimmtudaginn 1. september, klukkan 13:00. Á fundinum mun Stefán Pétursson, fjármálastjóri Arion banka, fara yfir helstu atriði í uppgjöri bankans. Áhugasamir geta sent tölvupóst á ir@arionbanki.is og fá í kjölfarið sendar nánari upplýsingar varðandi þátttöku á símafundinum.

Afkomutilkynning Arion banka 6M 2016
Ársreikningur samstæðu Arion banka 30. júní 2016
Afkomukynning Arion banka 6M 2016

Yfirferð á afkomu Arion banka á fyrri árshelmingi 2016

Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka, fer yfir afkomu Arion banka á fyrri árshelmingi 2016.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira