13.02.2019

Af­koma Arion banka ár­ið 2018

Jákvæð þróun í kjarnastarfsemi

Hagnaður samstæðu Arion banka á fjórða ársfjórðungi 2018 nam 1,6 milljarði króna samanborið við 4,1 milljarðs króna hagnað á sama tímabili 2017. Arðsemi eigin fjár var 3,2% á fjórða ársfjórðungi 2018 samanborið við 7,3% á sama tímabili árið 2017. Hagnaður samstæðunnar á árinu 2018 nam 7,8 milljörðum króna og arðsemi var 3,7% samanborið við 14,4 milljarða króna hagnað og 6,6% arðsemi á árinu 2017. Stjórn bankans leggur til að 10 milljarða króna arður verði greiddur eða sem samsvarar 5 krónum á hlut. Arðgreiðslan er liður í áframhaldandi hagræðingu á samsetningu eigin fjár bankans.

Heildareignir námu 1.164,3 milljörðum króna í árslok 2018 samanborið við 1.147,8 milljarða króna í árslok 2017 og eigið fé hluthafa bankans nam 200,9 milljörðum króna, samanborið við 225,7 milljarða króna í árslok 2017. Arion banki greiddi 16,2 milljarða króna í arð og keypti eigin bréf fyrir 17,1 milljarð króna.

Eiginfjárhlutfall bankans var 22,0% í árslok 2018 en var 24,0% í árslok 2017. Hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 nam 21,2% í árslok, samanborið við 23.6% í árslok 2017.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Afkoma Arion banka á fjórða ársfjórðungi var undir væntingum og sama má segja um árið í heild. Við sjáum hins vegar jákvæða þróun í grunnstarfsemi bankans og það er ánægjulegt að sjá að vaxtamunur hækkar á fjórða ársfjórðungi í samræmi við markmið okkar. Erfiðar aðstæður á hluta- og skuldabréfamörkuðum og ekki síst hræringar í flugrekstri settu mark sitt á starfsemina, bæði á fjórðungnum og á árinu í heild. Eitt helsta verkefni þessa árs verður að auka arðsemi í rekstri bankans og hafa ýmis verkefni verðið sett í gang með það að markmiði. Það er engu síður ljóst að það er erfitt verkefni að ná viðunandi arðsemi án umtalsverðra hækkana á útlánavöxtum þegar ríkisvaldið viðheldur ofursköttum á bankakerfið og eftirlitsaðilar bæta við eiginfjárkröfum og öðrum álögum.

Í nóvember var tilkynnt um samning bankans við Citi um ráðgjöf vegna fyrirhugaðra breytinga á eignarhaldi Valitor, dótturfélagi bankans, sem gætu falið í sér sölu á meirihluta hlutafjár eða öllu hlutafé í Valitor. Unnið er að undirbúningi söluferlisins og vænta má frekari tíðinda á þessu ári.

Arion banki var í árslok valinn markaðsfyrirtæki ársins 2018 af Ímark fyrir þá árangursríku stafrænu vegferð sem bankinn hefur verið á. Í raun er svo komið að stafrænu lausnirnar okkar vekja athygli út fyrir landsteinana en bankinn fékk tvenn alþjóðleg verðlaun fyrir þær í desember. Við höfum nú á rúmum tveimur árum kynnt um 20 nýjar stafrænar lausnir og hefur útibúanet bankans tekið breytingum í takt við vinsældir þessara nýju lausna. Á fjórðungnum opnuðum við tvær nýjar afgreiðslur sem taka mið af stafrænni þjónustu og nýta mun minna húsnæði en eldri útbú, alls fækkaði fermetrum sem útibúin okkar á höfuðborgarsvæðinu nýta um tæp 40% á árinu. Það gefur augaleið að þessi þróun hefur áhrif á hvernig við vinnum, hefur aukið skilvirkni í okkar störfum og þjónustu, en ekki síður hefur hún áhrif á hvernig viðskiptavinir sækja sér fjármálaþjónustu. Í dag gera þeir það í 97% tilfella í gegnum stafrænar leiðir, eins og appið, netbankann og vef bankans og jókst stafræn sala um 125% ár árinu.“

Fundur með markaðsaðilum

Haldinn verður fundur fyrir markaðsaðila þann 14. febrúar klukkan 8:30 þar sem Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri, og Stefán Pétursson, fjármálastjóri, munu kynna afkomu bankans og svara spurningum þátttakenda. Fundurinn fer fram á ensku í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19 og verður jafnframt streymt beint.
Þeir sem hyggjast sækja fundinn eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hér. Þeir sem vilja hringja inn á fundinn og taka þátt með því að leggja fram spurningar þurfa að hringja inn áður en kynningin hefst.

Ísland: 800 7415 (PIN: 90959272#)
Svíþjóð: +46 850 558 354
Bretland: +44 333 300 9260
Bandaríkin: +1 646 722 4902

Hægt verður að nálgast streymið beint á financialhearings.com og á fjárfestatengslavef bankans.

Afkomutilkynning Arion banka 4F 2018
Arion banki - ársreikningur samstæðu 2018
Afkomukynning Arion banka 4F 2018

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira