09.04.2021

Áhrifagreining grænna inn­lána Arion banka

Árið 2020 kynnti Arion banki til leiks, fyrstur íslenskra banka, grænan innlánsreikning sem ber nafnið Grænn vöxtur. Um er að ræða sparnaðarreikning sem er hugsaður fyrir einstaklinga, félagasamtök og fyrirtæki sem vilja leggja sitt af mörkum til umhverfisvænni framtíðar. Reikningurinn er óverðtryggður, óbundinn og því laus til úttektar hvenær sem er. Eitt meginhlutverk banka er að miðla fjármagni frá þeim sem eiga sparnað til þeirra sem þurfa lán og gegna innlán þar mikilvægu hlutverki. Fjármunum sem safnast inn á Grænan vöxt er einvörðungu ráðstafað til verkefna sem ætlað er að hafi jákvæð umhverfisáhrif í samræmi við umgjörð um græn innlán Arion banka.

Það veitir innblástur og hvatningu til að gera stöðugt betur að sjá hversu jákvæð áhrif það hefur á umhverfið að lána til grænna verkefna. Með grænum innlánum leggja viðskiptavinir sitt af mörkum til framtíðar. Heildarinnstæða Græns vaxtar var um sl. áramót rúmir 5 milljarðar króna og er áætluð losun gróðurhúsalofttegunda sem komið var í veg fyrir með fjármögnun grænna verkefna rúm 22 þúsund tonn CO2 vegna ársins 2020. Það samsvarar árlegri losun um tíu þúsund minni bifreiða sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti.

Vinsældir Græns vaxtar hafa haldið áfram á árinu 2021 og í lok marsmánaðar nam heildarinnistæða um 9 milljörðum króna.

CIRCULAR Solutions, sem nú er í eigu KPMG, hefur tekið út umgjörð bankans um græn innlán – sjá álit CIRCULAR. Fyrirtækið veitir árlega eftirfylgni við umgjörðina ásamt því að meta umhverfisáhrif af fjármögnuðum verkefnum.

Nánari upplýsingar um áhrifagreiningu Græns vaxtar má finna í árs- og samfélagsskýrslu Arion banka 2020.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
30. september 2026

Ný efna­hags­spá Ari­on: Langur vetur, hægar leysingar

Ný efnahagsspá Arion banka gerir ráð fyrir hörðum og krefjandi vetri í íslensku hagkerfi . Ekki sér fyrir endann á stríðsrekstri í Mið-Austurlöndum, með tilheyrandi áhrifum á orkumarkaði og verðbólgu- og hagvaxtarhorfur, bæði hér heima og erlendis. Vonir um skjótar vaxtalækkanir hafa því orðið að engu og svartsýni aukist innan heimila og fyrirtækja. Þrautaganga þessi endurspeglast í lægri hagvaxtarspá en áður, hærri vöxtum og meiri verðbólgu.  

Lesa meira
21. september 2026

Það er gott að vera í viðskiptum hjá Arion

Á síðustu misserum höfum við hjá Arion lagt sífellt meiri áherslu á að umbuna viðskiptavinum okkar fyrir að nýta sér fjölbreytta þjónustu bankans og dótturfélaga hans, Varðar og Stefnis. Tvö verkefni standa þar sérstaklega upp úr: Arion fríðindi og Arion framtíð. 

Lesa meira
18. september 2026

10.000 konur mætt á viðburði Konur fjárfestum

„Í rúm tvö ár höfum við hjá Arion unnið skipulega að stóru samfélagslegu verkefni sem nefnist Konur fjárfestum. Markmiðið hefur verið skýrt: Að fjölga þeim konum sem taka þátt í fjárfestingum, efla þekkingu kvenna á fjármálum með áhugaverðri fræðslu og styðja konur í því að ná fjárhagslegu sjálfstæði.“ 

Lesa meira