12.02.2018

Ákvörð­un hlut­hafa­fundar um breyt­ingu á sam­þykkt­um og ákvörð­un um skil­yrta arð­greiðslu

Á hluthafafundi Arion banka hf. sem fram fór í dag 12. febrúar 2018 var ákveðið að taka upp í samþykktir bankans tímabundna heimild til handa stjórn bankans til að kaupa til baka hlutabréf útgefin af bankanum. Jafnframt samþykkti hluthafafundur tillögu stjórnar bankans um skilyrta arðgreiðslu til hluthafa bankans.

Arðgreiðsla og kaup á eigin bréfum sem samþykkt var er að fullu í samræmi við langtímamarkmiði Arion banka um að minnka umfram eigið fé bankans. Að framkvæmd lokinni lækkar eiginfjárhlutfall bankans um ríflega 3% en er engu að síður vel umfram kröfur FME og það sem bankinn telur hæfilegt.

Lesa má tilkynningu bankans til kauphallar hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira