26.01.2018

Allt að 12 mán­aða dreifing reikninga í Arion app­inu

Arion banki kynnir í dag nýjung á sviði greiðsludreifingar. Viðskiptavinir bankans geta nú með einföldum hætti, í Arion appinu og netbankanum, dreift einstaka reikningum í allt að tólf mánuði á kreditkort. Þannig geta viðskiptavinir t.d. dreift tryggingagreiðslum, afborgunum námslána eða öðrum stórum greiðslum án þess að skrá sig í greiðsluþjónustu eða semja við kröfuhafann.

Á sama tíma eru kynntar fleiri nýjungar í Arion appinu. Nú geta viðskiptavinir meðal annars valið að fá tilkynningar um nýja reikninga og þá reikninga sem komnir eru á eindaga. Þá er einfalt að setja reikninga í sjálfvirkar greiðslur, stofna sparnaðarreikninga og stofna til reglulegs sparnaðar. Með þessum viðbótum er viðskiptavinum gert kleift hefja sparnað í örfáum skrefum.

Þá hefur Netbanki Arion banka verið endurbættur og veitir forsíða hans nú enn skýrari yfirsýn. Þeim breytingum er ætlað að bæta upplifun viðskiptavina þegar framkvæmdar eru mánaðarlegar aðgerðir á borð við að greiða reikninga, ráðstafa lausafé, jafna útgjaldatoppa og fleira. Þessar nýjungar, líkt og aðrar sem bankinn hefur kynnt á síðustu misserum, eru afrakstur þróunarvinnu Arion banka sem miðar að því að veita viðskiptavinum betri og þægilegri bankaþjónustu.

Arion banki leggur mikla áherslu á að þróa stafrænar lausnir sem auðvelda viðskiptavinum að sinna fjármálum sínum hvar og hvenær sem er. Þessar lausnir eru liður í því. Á síðustu misserum hefur bankinn m.a. kynnt stafrænar leiðir til að stofna til bankaviðskipta, gera greiðslumat og sækja um íbúðalán. Á næstunni verða kynntar frekari nýjungar á þessu sviði.

Nánari upplýsingar um Arion appið

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira