02.03.2017

App frá 25 ára göml­um af­sláttar- og fríðinda­klúbbi slær í gegn

Yfir 12.000 manns sóttu sér app Einkaklúbbsins fyrstu tvær vikurnar eftir útgáfu. Samkvæmt Jóni Andra hjá Stokki Software, sem bjó til appið í samstarfi við Arion banka, fer það þar með í hóp þeirra 10 íslensku smáforrita sem hafa fengið hröðustu útbreiðslu eftir að þau urðu aðgengileg.

Einkaklúbburinn hefur verið meðal stærstu fríðinda- og afsláttarklúbba landsins frá stofnun árið 1992, en aðild að klúbbnum hefur um árabil veitt aðgang að tilboðum hjá hundruðum fyrirtækja um allt land. Í janúar 2017 fengu allir viðskiptavinir Arion banka aðgang að Einkaklúbbnum þeim að kostnaðarlausu.

Appið er bylting í starfsemi Einkaklúbbsins. Það leysir af hólmi kort og prentaða árbók með rifgötuðum tilboðsmiðum og lista yfir fyrirtæki sem veita félögum afslátt og fríðindi. Nú er listinn kominn í appið og rifgötuðu miðarnir orðnir að einskiptis tilboðum sem hægt er að virkja í appinu þegar fólki hentar. Með appinu færist Einkaklúbburinn sem sagt úr umhverfi Gutenbergs og póstberans inn í stafrænan heim netsins. Einkaklúbburinn er í eigu Arion banka og nóg er að vera með netbanka Arion banka til geta sótt sér Einkaklúbbsappið.

Að sögn Stefáns Jökuls Stefánssonar, sérfræðings bankans í stafrænni markaðssetningu, hafa að jafnaði rúmlega 1.200 manns nýtt sér appið dag hvern eftir fyrstu vikuna sem það varð aðgengilegt. Einkaklúbbsappið er hluti af þeirri stefnu Arion banka að vera fremsti stafræni banki landsins og auka þannig þægindi viðskiptavina og efla þjónustu. Áður hefur Arion banki meðal annars kynnt stafrænar leiðir til að stofna til bankaviðskipta og dreifa kreditkortagreiðslum. Þá er Arion banki eini banki landsins sem býður fólki að sækja um greiðslumat og íbúðarlán á netinu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira