19.06.2020

Ár­angurs­mið­að viðskipta­sam­band Frjálsa lífeyris­sjóðsins og Arion banka

Í ljósi gagnrýni sem fram hefur komið í fjölmiðlum síðustu daga um starfsemi Arion banka vegna eignastýringar og reksturs Frjálsa lífeyrissjóðsins, varðandi ávöxtun, kostnað og veltu, er vert að taka eftirfarandi fram:

  • Ávöxtun og kostnaður – ávöxtun Frjálsa stenst allan samanburð, bæði varðandi skyldusparnað og viðbótarsparnað, og rekstrarkostnaður sjóðsins fer markvisst lækkandi.

  • Óhæði – allir stjórnarmenn Frjálsa eru kosnir af sjóðfélögum, enginn stjórnarmaður er á vegum Arion banka, framkvæmdastjóri er starfsmaður sjóðsins og ytri og innri endurskoðandi á vegum þriðja aðila.

  • Gegnsæi – mikið er lagt upp úr góðri og skýrri upplýsingagjöf til sjóðfélaga, m.a. er viðskiptasamningur Frjálsa við Arion banka aðgengilegur öllum, hann má sjá hér.

Samstarf Arion banka og Frjálsa er byggt á heilbrigðu viðskiptasambandi tveggja sjálfstæðra aðila. Frjálsi hefur birt ítarlegar upplýsingar varðandi starfsemina sem má finna hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira