12.07.2017

Arion app­ið er besta banka­app­ið á Ís­landi

Arion appið er besta bankaappið á Íslandi samkvæmt niðurstöðum könnunar MMR. Könnunin var framkvæmd dagana 15.-21. júní og byggja niðurstöðurnar á svörum ríflega 1.000 álitsgjafa MMR. Könnunin sýnir mikla ánægju notenda Arion appsins en 79% aðspurðra sögðust frekar eða mjög ánægðir með Arion appið. Þá töldu 52,4% svarenda Arion appið það besta á íslenskum bankamarkaði.

Við kunnum viðskiptavinum okkar bestu þakkir fyrir þessa frábæru dóma. Niðurstaðan er okkur hjá Arion banka mikið fagnaðarefni og staðfestir árangur bankans á sviði stafrænna lausna.

Arion banki mun áfram leggja áherslu á að veita þægilega bankaþjónustu fyrir framtíðina. Þess vegna munum við halda áfram að breyta og bæta Arion appið í samstarfi við viðskiptavini okkar samhliða þróun enn fleiri stafrænna þjónustuleiða.

Niðurstöður könnunar MMR

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira