10.05.2017

Arion banki á Fjármála­deg­in­um

Fjármáladagurinn var haldinn í gær á Hilton Reykjavik Nordica. Ráðstefnan var nú haldin í fimmta sinn en henni er ætlað að fjalla um það sem framundan er í fjármálaþjónustu og fjármálum fyrirtækja. Á dagskránni í gær voru meðal annars erindi um gervigreind og róbóta í fjármálum, aðlögun fyrirtækja að breyttri tækni og framtíðarútlit fjármálaumhverfisins auk ávarps Dr. Benedikts Jóhannessonar, fjármála- og efnahagsráðherra.

Arion banki er einn af bakhjörlum Fjármáladagsins en auk þess var Tómas Ingason, forstöðumaður stafrænnar framtíðar Arion banka, einn af ræðumönnum dagsins. Í erindi sínu fjallaði Tómas um stefnumiðaða vegferð Arion banka í átt að stafrænni framtíð en síðastliðið ár hefur bankinn sett í loftið fjölda nýrra stafrænna þjónustuleiða sem allar miða að því að auka þjónusta og þægindi fyrir viðskiptavini bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira