04.11.2020

Arion banki at­kvæða­mest­ur í hluta­bréf­um og skulda­bréf­um

Arion banki var með mestu hlutdeild kauphallaraðila í október, bæði í hlutabréfum og skuldabréfum. Þetta kemur fram í gögnum frá Nasdaq Iceland. Það hefur ekki gerst síðan í febrúar 2019 að sami aðilinn sé veltuhæstur í báðum flokkum verðbréfa en þá náði bankinn einnig þeim árangri.

Um er að ræða öll viðskipti í kauphöllinni sem framkvæmd eru af markaðsviðskiptum Arion banka undir auðkenni bankans fyrir hönd viðskiptavina eða eigin viðskipta bankans.

Í hlutabréfaviðskiptum á aðallista var hlutdeild Arion banka í október samtals 26,3%. Það sem af er ári er hlutdeild bankans 22,1% og er bankinn þar fremstur meðal markaðsaðila og hefur verið það í átta mánuði af þeim tíu sem liðnir eru af árinu. Á eftir koma Íslandsbanki, Kvika banki og Fossar markaðir í þessari röð.

Í viðskiptum með skuldabréf var hlutdeild Arion banka 19,4% í október sem er hæsta markaðshlutdeild bankans á þessu ári. Það sem af er ári er Arion banki í þriðja sæti með 16,3% hlutdeild í skuldabréfaviðskiptum á eftir Kviku banka og Íslandsbanka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira