11.08.2026

Arion banki bak­hjarl Ein­víg­isins á Nes­inu

Góðgerðagolfmótið Einvígið á Nesinu fór fram á Nesvellinum í frábæru veðri á frídegi verslunarmanna. Þetta var í 30. skiptið sem mótið var haldið og eins og ávallt var það haldið til styrktar góðu málefni tengdu börnum. Styrkþegi í ár var Bergið sem er stuðnings- og ráðgjafasetur sem veitir ungu fólki einstaklingsmiðaða og gjaldfrjálsa ráðgjöf og stuðning á þeirra forsendum.

Þáttur um mótið verður sýndur á Sýn Sport í kvöld, 11. ágúst, klukkan 20:00.

Sigurvegari mótsins varð að lokum Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur sem sigraði Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur úr Golfklúbbnum Keili á 9. og síðustu holu.

Mótið er eins og áður sagði fyrst og fremst góðgerðarmót og afhentu þeir Þorsteinn Guðjónsson, formaður Nesklúbbsins, og Jóhann Möller frá Arion banka, Berginu ávísun að upphæð kr. 1.000.000.

Úrslit urðu eftirfarandi:

  • 1. sæti: Tómas Eiríksson Hjaltested

  • 2. sæti: Guðrún Brá Björgvinsdóttir

  • 3. sæti: Gunnlaugur Árni Sveinsson

  • 4. sæti: Perla Sól Sigurbrandsdóttir

  • 5. sæti: Logi Sigurðsson

  • 6. sæti: Aron Snær Júlíusson

  • 7. sæti: Hlynur Bergsson

  • 8. sæti: Dagbjartur Sigurbrandsson

  • 9. sæti: Ragnhildur Kristinsdóttir

  • 10. sæti: Skarphéðinn Egill Þórisson

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira