12.06.2018

Arion banki bak­hjarl Ferða­félags Ís­lands

Arion banki verður aðalsamstarfsaðili og bakhjarl Ferðafélags Íslands (FÍ) næstu þrjú árin. Þetta kemur fram í samstarfssamningi bankans og FÍ sem undirritaður var á dögunum.

Arion banki mun leggja Ferðafélagi Íslands lið til góðra verka á fjöllum, m.a. til uppbyggingar göngustíga og fjallaskála, almenningi og ferðafólki til heilla. Þá mun bankinn einnig styðja við eflingu öryggismála á fjöllum, náttúruvernd og fleiri samfélagslegra verkefna Ferðafélagsins.

Í samtali við Morgunblaðið sagði Páll Eysteinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands:

„Okkur er mikið ánægjuefni að fá þennan góða bakhjarl. Við höfum á síðustu árum staðið fyrir uppbyggingu víða, svo sem á Laugaveginum þar sem framkvæmt hefur verið fyrir háar upphæðir. Þá er félagið öflugt í ýmsum lýðheilsuverkefnum; það er að fá fólk til að hreyfa sig sem gerir öllum gott. Liðsinni Arion banka í þessu er kærkomið og mikilvægt. “

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira