26.04.2016

Arion banki bak­hjarl Ice­land Geot­hermal ráð­stefn­unnar í Hörpu

Arion banki er einn af aðalbakhjörlum Iceland Geothermal ráðstefnunnar sem hefst á morgun, 27. apríl og stendur til föstudags. Það er Íslenski jarðvarmaklasinn sem stendur fyrir ráðstefnunni sem nú er haldin í þriðja sinn.

Áherslan í þetta sinn er á jákvæð áhrif nýtingu jarðvarma og verða fjölmargir fyrirlesarar með erindi á ráðstefnunni. Michael Porter, hagfræðingur og prófessor í Harvard Business School, verður einn af lykilfyrirlesurum en Porter hefur oft verið nefndur einn af áhrifamestu hugsuðum heims á sviði viðskipta. Auk hans verður A. Amin forseti International Renewable Agency og Rachel Kyte, formaður nefndar um sjálfbæra orku fyrir alla hjá Alþjóðabankanum með erindi. Þá munu Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku og Hörður Árnason, forstjóri Landsvirkjunar, fjalla um nýtingu jarðvarma.

Verndari ráðstefnunnar er Ólafur Ragnar Grímsson forseti og mun Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra opna ráðstefnuna. Gert er ráð fyrir á bilinu 800-1000 gestum á ráðstefnuna frá um það bil 40 löndum.

Hér má sjá kynningarmyndband fyrir ráðstefnuna: www.icelandgeothermal.is/events/igc-2016.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira