29.04.2026

Arion banki birt­ir Áhrifa- og út­hlut­unar­skýrslu grænnar fjármögnun­ar

Arion banki hefur birt Áhrifa- og úthlutunarskýrslu fyrir græna fjármögnun bankans árið 2025. Í skýrslunni er að finna yfirlit yfir úthlutun fjármagns til verkefna sem uppfylla kröfur um græna fjármögnun samkvæmt sjálfbærri fjármálaumgjörð bankans og dregin eru fram jákvæð umhverfis- og loftslagsáhrif þeirra.

Skýrslan veitir yfirlit yfir helstu flokka sjálfbærrar fjármögnunar, stöðu grænna skuldabréfa og innlána í lok árs 2025. Í skýrslunni eru dregin fram áhugaverð dæmi um verkefni sem bankinn hefur fjármagnað til að sýna fram á þann metnað sem við vonumst til að ýta undir með útgáfu sjálfbærra fjármálagerninga.

Sjálfbær fjármálaumgjörð Arion banka var gefin út á árinu 2024 og byggir á grunni grænnar fjármálaumgjarðar bankans sem tekin var í notkun árið 2021. Á undanförnum árum hefur Arion banki verið virkur í útgáfu grænna skuldabréfa. Í lok árs 2025 voru fimm slíkar skuldabréfaútgáfur útistandandi, þar af tvær sem gefnar voru út á síðasta ári. Bankinn hefur byggt upp sterkt vöruúrval í tengslum við græna fjármögnun, þar á meðal græn húsnæðis- og bílalán, innlán og fyrirtækjalán.

Með útgáfu Áhrifa- og úthlutunarskýrslu 2025 undirstrikar Arion banki skuldbindingar sínar við gagnsæja og ábyrga upplýsingagjöf um nýtingu fjármagns. Markmið bankans er að auka hlut sjálfbærrar fjármögnunar í útlánasafni sínu og styðja þannig við loftslagsmarkmið Íslands og alþjóðlegar skuldbindingar um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira