31.05.2018

Arion banki birt­ir lýsingu og verð­bil í vænt­an­legu frumút­boði

Arion banki, sem er íslenskur alhliða banki, hefur birt lýsingu og upplýsingar um það verðbil sem ákveðið hefur verið í frumútboði á hlutabréfum í bankanum. Frekari upplýsingar er að finna á vef Arion banka, www.arionbanki.is/IPO.

Stefnt er að því að skrá hlutabréf í bankanum hjá Nasdaq á Íslandi og hlutabréf í formi SDR heimildaskírteina (e. Swedish Depository Receipts) hjá Nasdaq í Stokkhólmi. Gert er ráð fyrir að skilyrt viðskipti (með skilyrði um töku til viðskipta) hefjist þann 15. júní og að óskilyrt viðskipti hefjist þann 19. júní og að sama dag verði hlutabréfin tekin til viðskipta, að því gefnu að lagaskilyrði séu uppfyllt og markaðsaðstæður leyfi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira