06.02.2025

Arion banki breyt­ir vöxt­um 10. fe­brú­ar nk.

Mánudaginn 10. febrúar taka eftirfarandi breytingar á inn- og útlánsvöxtum Arion gildi:

Íbúðalán
  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,50 prósentustig og verða 9,64%

Kjörvextir
  • Óverðtryggðir breytilegir kjörvextir lækka um 0,50 prósentustig og verða 10,85%

Bílalán
  • Kjörvextir bílalána lækka um 0,50 prósentustig og verða 11,25%

Yfirdráttavextir
  • Yfirdráttavextir lækka um 0,50 prósentustig og verða 15,75%

Kreditkort
  • Greiðsludreifing og veltuvextir kreditkorta lækka um 0,50 prósentustig og verða 15,75%

Innlán
  • Vextir veltureikninga lækka um allt að 0,50 prósentustig

  • Vextir annarra óverðtryggðra sparireikninga lækka um allt að 0,50 prósentustig

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar. Það sama gildir um breytingar á vöxtum innlána sem falla undir lög um greiðsluþjónustu.

Vaxtabreytingar útlána Arion banka taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
31. ágúst 2026

Arion banki breytir vöxtum

Eftirfarandi breytingar á óverðtryggðum inn- og útlánsvöxtum neytenda og fyrirtækja taka gildi fimmtudaginn 3. september næstkomandi.

Lesa meira
26. ágúst 2026

Leiðin að lánshæfu nýsköpunarfyrirtæki

Arion banki býður til fræðsluviðburðar í Borgartúni 19, fimmtudaginn 3. september kl. 17:00.

Lesa meira
26. ágúst 2026

Arion banki, Stefnir og Vörður fá viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki

Átján íslensk fyrirtæki hlutu nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir árin 2025–2026 við hátíðlega athöfn á Nauthóli þann 20. ágúst síðastliðinn. Þar á meðal voru Arion banki, Stefnir og Vörður.

Lesa meira