22.05.2026

Arion banki breyt­ir vöxt­um

Eftirfarandi breytingar á óverðtryggðum inn- og útlánsvöxtum neytenda og fyrirtækja taka gildi föstudaginn 29. maí.

Íbúðalán
  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 9,44%

Kjörvextir
  • Óverðtryggðir breytilegir kjörvextir einstaklinga og fyrirtækja hækka um 0,25 prósentustig og verða 10,60%

Bílalán
  • Kjörvextir bílalána hækka um 0,25 prósentustig og verða 11,00%

Yfirdráttavextir
  • Yfirdráttavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 15,50%

Kreditkort
  • Greiðsludreifing og veltuvextir kreditkorta hækka um 0,25 prósentustig og verða 15,50%

  • Aðrir óverðtryggðir breytilegir vextir útlána hækka um 0,25 prósentustig

Innlán
  • Vextir veltureikninga haldast óbreyttir

  • Vextir annarra óverðtryggðra reikninga hækka um allt að 0,25 prósentustig

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar. Það sama gildir um breytingar á vöxtum innlána sem falla undir lög um greiðsluþjónustu.

Vaxtabreytingar útlána Arion banka taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Hækkun breytilegra vaxta óverðtryggðra lána um 0,25 prósentustig kemur fyrst og fremst til vegna hækkunar á fjármögnunarkostnaði bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
13. nóvember 2026

Truflun á tölvupóstþjónustu

Vegna tæknilegra truflana í þjónustu sem við nýtum hjá Microsoft eigum við í tímabundnum vandræðum með tölvupóstþjónustuna okkar. Truflanirnar kunna einnig að hafa áhrif á aðra þjónustu og kerfi.

Lesa meira
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira