21.03.2025

Arion banki breyt­ir vöxt­um 27. mars nk.

Fimmtudaginn 27. mars taka eftirfarandi breytingar á inn- og útlánsvöxtum Arion gildi:

Íbúðalán
  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,25 prósentustig og verða 9,39%

Kjörvextir
  • Óverðtryggðir breytilegir kjörvextir lækka um 0,25 prósentustig og verða 10,60%

Bílalán
  • Kjörvextir bílalána lækka um 0,25 prósentustig og verða 11,00%

Yfirdráttavextir
  • Yfirdráttavextir lækka um 0,25 prósentustig og verða 15,50%

Kreditkort
  • Greiðsludreifing og veltuvextir kreditkorta lækka um 0,25 prósentustig og verða 15,50%

Innlán
  • Vextir almennra veltureikninga haldast óbreyttir

  • Vextir annarra óverðtryggðra reikninga lækka 0,05 - 0,35 prósentustig

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar. Það sama gildir um breytingar á vöxtum innlána sem falla undir lög um greiðsluþjónustu.

Vaxtabreytingar útlána Arion banka taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
11. september 2026

Öryggisprófun laugardaginn 12. september

Laugardaginn 12. september fer fram öryggisprófun innan Arion banka milli kl. 9 og 17. 

Lesa meira
10. september 2026

Sumarlaunaleikur Arion skapar stemningu um allt land

Sumarlaunaleikur Arion hefur fest sig í sessi sem árlegur viðburður hjá okkur og felur í sér alls kyns skemmtilegheit. Í ár hvöttum við unglinga í sumarvinnu til að taka upp stutt og sniðug myndbönd undir myllumerkinu #arionsport. Viðbrögðin létu ekki á sér standa en um hundrað myndbönd voru merkt með þeim hætti á samfélagsmiðlum.  

Lesa meira
7. september 2026

Húsfyllir á viðburði Arion banka um nýsköpun og vöxt

Á annað hundrað manns mættu á fræðsluviðburðinn „Leiðin að lánshæfu nýsköpunarfyrirtæki“ í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, þann 3. september síðastliðinn. Var sviðsljósinu beint að nýsköpun, vexti og þeim fjármögnunarleiðum sem nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum standa til til boða. 

Lesa meira