31.08.2026

Arion banki breyt­ir vöxt­um

Eftirfarandi breytingar á óverðtryggðum inn- og útlánsvöxtum neytenda og fyrirtækja taka gildi fimmtudaginn 3. september næstkomandi.

Íbúðalán
  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 9,69%

  • Verðtryggðir fastir íbúðalánavextir hækka um 0,30 prósentustig og verða 4,94% (á bara við um ný lán)

Kjörvextir
  • Óverðtryggðir breytilegir kjörvextir einstaklinga og fyrirtækja hækka um 0,25 prósentustig og verða 10,85%

Bílalán
  • Kjörvextir bílalána hækka um 0,25 prósentustig og verða 11,25%

Yfirdráttavextir
  • Yfirdráttavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 15,75%

Kreditkort
  • Greiðsludreifing og veltuvextir kreditkorta hækka um 0,25 prósentustig og verða 15,75%

Aðrir óverðtryggðir breytilegir vextir útlána hækka um 0,25 prósentustig

Innlán
  • Vextir veltureikninga haldast óbreyttir

  • Vextir annarra óverðtryggðra reikninga hækka um allt að 0,25 prósentustig

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar. Það sama gildir um breytingar á vöxtum innlána sem falla undir lög um greiðsluþjónustu.

Vaxtabreytingar útlána Arion banka taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun og eiginfjárgerninga.

Hækkun útlánavaxta kemur fyrst og fremst til vegna hækkunar á fjármögnunarkostnaði bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
31. ágúst 2026

Arion banki breytir vöxtum

Eftirfarandi breytingar á óverðtryggðum inn- og útlánsvöxtum neytenda og fyrirtækja taka gildi fimmtudaginn 3. september næstkomandi.

Lesa meira
26. ágúst 2026

Leiðin að lánshæfu nýsköpunarfyrirtæki

Arion banki býður til fræðsluviðburðar í Borgartúni 19, fimmtudaginn 3. september kl. 17:00.

Lesa meira
26. ágúst 2026

Arion banki, Stefnir og Vörður fá viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki

Átján íslensk fyrirtæki hlutu nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir árin 2025–2026 við hátíðlega athöfn á Nauthóli þann 20. ágúst síðastliðinn. Þar á meðal voru Arion banki, Stefnir og Vörður.

Lesa meira