14.10.2022

Arion banki breyt­ir vöxt­um íbúða­lána

Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands breytast vextir óverðtryggðra íbúðalána Arion banka í dag, 14. október. Jafnframt breytast vextir verðtryggðra íbúðalána vegna hærri fjármögnunarkostnaðar.

Breytilegir vextir þegar veittra lána hækka 30 dögum eftir tilkynningu þar um en öll ný útlán bera nýju vextina.

Breytingarnar eru eftirfarandi:

Óverðtryggð íbúðalán
  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 7,59%

  • Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir eru óbreyttir og eru áfram 7,75%

Verðtryggð íbúðalán
  • Verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,75 prósentustig og verða 2,94%

  • Verðtryggðir fastir 5 ára íbúðalánavextir hækka um 0,75 prósentustig og verða 2,94%

Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira