21.10.2022

Arion banki breyt­ir vöxt­um inn­lána og annarra út­lána en íbúða­lána

Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánavextir Arion banka breytast, en þann 14. október kynnti bankinn breytingar á íbúðalánavöxtum, eins og sjá má hér.

Breytilegir kjörvextir hækka 30 dögum eftir tilkynningu þar um en vextir yfirdráttarlána og innlána breytast á morgun 22. október.

Helstu breytingar eru eftirfarandi:

Kjörvextir
  • Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 8,60%

  • Almennir verðtryggðir kjörvextir hækka um 0,75 prósentustig og verða 4,45%

Bílalán
  • Kjörvextir bílalána hækka um 0,25 prósentustig.

Yfirdráttur og greiðsludreifing
  • Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga kreditkorta hækka um 0,25 prósentustig

Innlán
  • Breytilegir óverðtryggðir vextir sparnaðarreikninga hækka um allt að 0,35 prósentustig. Vextir veltureikninga hækka um 0,05 prósentustig.

Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira